Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál
21.2.2009 | 13:44
Á að nauðga íslensku þjóðinni eina ferðina enn.
Eftir lestur frétta undanfarna daga verður maður alltaf meira og meira gáttaður á því sem gerst hefur hér á landi. Hér hafa örfáir einstaklinga keyrt allt í þrot og finnst ekkert af því sem þeir hafa framkvæmt koma sér við eða bera á því nokkra ábyrgð. Það ótrúlega við þetta allt saman er að þeir ganga enn allir lausir og með allt það sem þeir hafa stolið úr íslenska bankakerfinu eins og ekkert hafi gerst. Nú er svo komið að ríkisstjórnin er farin frá og ný komin í staðinn en hún var búin til af forseta ykkar, hurðaopnara fjárglæframanna og klappstýru auðdónanna, Ólafi Ragnari Grímssyni. Hann situr enn á Bessastöðum með 32% atkvæði þjóðarinnar á bak við sig og sendir frá sér skilaboð út í heim þar sem menn standa á öndinni yfir orðum hans og hrista höfuðið, er hann ekki í standi þessi maður. En þetta er allt saman einhver miskilningur, segir hann svo aftur og aftur. Er ekki málið að pakka niður og koma sér til London þeir eru þar allir vinir þínir fjárglæframennirnir sem settu hér allt á hliðina.
Mér blöskrar að sú ríkisstjórn, sem nú situr og var ekki kosin af fólkinu heldur búin til af forseta ykkar, klappstýru auðdónanna, ætlar að taka allt vald í sínar hendur og svipta Alþingi því hlutverki að vera stjórnarskrárgjafi. Þessi nýja ríkisstjórn hyggst gera róttækar breytingar á stjórnarskrá lýðveldisins en ætti umfram allt að umgangst hana af virðingu. Ég vona að þjóðin sé að átta sig á því hvað er að gerast fyrir framan nefið á henni.Annað sem þessi umboðslausa ríkisstjórn stendur nú fyrir, í skjóli valdsins sem forseti ykkar, klappstýra auðdónanna, veitti þeim eru hreinsanirnar í Seðlabanka Ísland. Það gengur svo mikið á að koma einum manni út út bankanum að annað eins hefur ekki sést. Er ekki betra að draga dúpt andann og vanda vinnu sína? Ekkert gott mun leiða af þessu offorsi.
Ekki láta glepjast af þeim áróðri sem gengið hefur yfir landið eins og versta pest í boði Baugsmiðlanna og ástkæru vina þeirra, Samfykingarinnar, sem bar alla ábyrgð á bankamálum landsmanna síðastliðin ár og því meigum við ekki gleyma.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:53 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
20.2.2009 | 13:02
Sjónhverfing í Héraðsdómi Reykjavíkur í boði Baugs.
Það er ótrúlegt að lesa Morgunblaðið í morgun um þann málflutning sem fram fór í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær. Þar var verið að fara yfir kaupin og söluna á bréfum í Sparisjóði Hafnarfjarðar. Hér eru starfsmenn Baugs og nánir félagar Jóni Ásgeir Jóhannessyni í FL Group og Glitni á ferð eina ferðina enn að snýta þjóðinni, þeir Stefán Hilmarsson fyrr um endurskoðanda hjá KPMG sem sá um öll bókhaldsmál Baugs þar á bæ og fyrirtækjum tendum þeim og sem nú starfar sem fjármálastjóri Baugs Group og sérstakur aðstoðarmaður forstjóra Baugs Group í dag , Pámi Haraldsson í Fons og einn eiganda FL Group og Baugs Group og svo má lengi telja, Magnús Ármann einn eiganda FL Group og stjórnarmann í því félagi, Sigurður G. Gujónsson lögmann og náin vin þessara fjárglæframanna og svo Karl Georg lögmann og einn besta vin Magnúsar Ármans tala um að þeir vissu ekki hver var að kaupa og hver var að selja bréfin í Sparisjóðinum og á hvaða gengi þeir voru að kaupa eða selja þessi bréf. Bíddu við hvaðan komu peningarnir fyrir þessum gjörning? Jú frá A - Holding í Lux og hver átti A - Holding ? Gæti það verið Baugur og Jón Ásgeir Jóhannesson? BINGO mikið rétt. En svona gerast kaupin á Eyrini þó þessir háu herrar reyna að telja okkur hin um annað. En þetta kalla ég Sjónhverfingu eins og hún gerist best.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 13:21 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (13)
19.2.2009 | 14:22
Kaupþing með handveð í Högum.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 17:18 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
18.2.2009 | 17:50
Áskorun til þjóðarinna á Facebook burt með Klappstýru auðdóna.
Þeir sem vilja nýjan forseta geta staðfest vilja sinn á Facebook undir group "NÝJAN FORSETA
Í ljósi þeirra aðstæðna sem skapast hafa í þjóðfélaginu að undanförnu þar sem eiga sér stað hreinsanir í ýmsum stofnunum lýðveldisins, viljum við að Ólafur Ragnar Grímsson segi af sér og við fáum að kjósa nýjan forseta. Forseti þufi að fá yfir 50% atkvæða (e.t.v. tvær umferðir) og hann sitji í mesta lagi í tólf ár. Þetta gefur möguleika á sátt milli allra þegna okkar ágæta lands. Nú þegar hafa yfir 700 mans skráð sig á síðuna burt með Forseta Íslands hurðaopnari fjárglæframanna og klappstýra auðdóna Ólaf Ragnar Grímsson burt með hann og það STRAX.
http://www.facebook.com/group.php?gid=59174102358#
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:03 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
16.2.2009 | 10:45
Forseti Íslands með Baugs syndrome
![]() |
Á svig við sannleikann |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 10:49 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (20)
15.2.2009 | 22:56
Að lána þrjá milljarða í íbúða kaup.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 23:11 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (7)
15.2.2009 | 00:20
Ungir og menntaðir (siðlausir) en án reynslu réðu í bönkunum nær öllu.
12.2.2009 | 18:25
''Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lýsir eftir''
samkvæmt niðurstöðu (Jóns Ásgeirs)dómnefndar Markaðarins, viðskiptablaðs (Baugs)Fréttablaðsins.
Gæti þetta ekki verið fyrirsögnin á morgun ? En þessi frétt var í Morgunblaðinu 27.10.2008
''Hannes Smárason, fyrrverandi forstjóri FL Group, sagði í fréttum Stöðvar 2 í kvöld, að hann ætli að leggja sitt fé í að byggja Ísland upp að nýju. Óhætt sé að segja, að of hratt hafi verið farið í útrás íslenskra fyrirtæka og fyrirtæki hafi verið stækkuð án nægilegrar undirbyggingar.Hannes sagði að illa væri komið fyrir þjóðinni og allir yrðu að leggjast á sveifina og koma henni á fæturna aftur. Hann hefði allar eignir sínar undir í því verkefni.''
Ætli Hannes Smárason sé lost á Tortola eyjum ?Ég bara spyr.
11.2.2009 | 23:43
Kastljós, miðvikudaginn 11. febrúar 2009
Viðskipti og fjármál | Breytt 12.2.2009 kl. 00:26 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (10)
11.2.2009 | 13:50
''Annaðhvort eruð þið með okkur eða á móti okkur''
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:00 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)