Færsluflokkur: Viðskipti og fjármál

Krosseignatengsl skoðuð í hinni íslenskri spilaborg sem hrundi fyrir skemmstu. YouTube myndbandið Desember 2008

Er fólk hissa að allt sé hrunið hér heima? Það þarf ekki Dani eða Breta til að segja okkur að þetta var allt tóm Steypa og gat bara endað á einn veg. 

Græðgi þessara manna hefur eyðileggi orðstír heillar þjóðar.

Góða kvöldstund.

 

 


Lánuðu sjálfum sér milljarða "Græðgi er góð." sagði Hreiðar Már Sigurðsson ,forstjóri Kaupþings banka

Ekki ætti þetta að koma neinum á óvart bara ef þjóðinn hefði hlustað. Jónína Ben skrifaði grein í Morgunblaðið 19. mars 2005. '' Ef menn stunda bókhaldsglæp'' og önnur nokkuð góð sem birt var í Morgunblaðinu 01. júní 2005. '' Græðgin endalausa '' og svona má lengi telja, á þessum árum hlustaði eingin því það var svo gaman að taka þátt í þessu sukku og allt var túlkað sem öfund og hatur bara ef blessuð þjóðinn hefði hlustað einu sinni.

Græðgi þessara manna hefur eyðileggi orðstír heillar þjóðar.


mbl.is Lánuðu sjálfum sér milljarða
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

"Græðgi er góð." sagði Hreiðar Már Sigurðsson ,forstjóri Kaupþings banka

"Hagnaður kemur alltaf fyrst," sagði Hreiðar Már Sigurðsson ,forstjóri Kaupþings banka, á fundi í Kaupmannahöfn fyrir viku (byrjun júní 2005). Við sjáum hvaða árangur það hefur borið fyrir íslenskt atvinnulíf. Í ljósi þess er hægt að segja: "Græðgi er góð."

Þessi grein Björgvins Guðmundssonar var birt í Fréttablaðinu 10. júní 2005. Eina og allir vita þá er þetta málgagn í eigu Jón Ásgeir Jóhannessonar og fjölskyldu og niðurgreitt af Bónus og félögum tengdum honum í formi auglýsinga eins og sjá má í dag.

"Græðgi er góð," sagði Michael Douglas í frægu hlutverki sem bisnessmaðurinn Gordon Gekko í kvikmyndinni Wall Street árið 1987. Vísaði hann til þess að græðgin skildi hismið frá kjarnanum og fangaði undirstöðu framþróunar mannsandans. Græðgin væri ekki bara til góðs í viðskiptum heldur einnig í leitinni að betra lífi, ást eða þekkingu. Græðgin hefði markað framfarir í mannkynssögunni og myndi hjálpa fólki jafnt sem fyrirtækjum.
Vafalaust eru margir ósammála Gordon Gekko um að græðgin sé góð. Hins vegar má segja að sannleikskorn leynist í orðum hans að því gefnu að græðgi eins manns verði ekki til þess að brjóta á rétti annars. Græðgin leysir úr læðingi kraft sem getur drifið fólk áfram á sínu sviði. Við getum talað um græðgi til að ná árangri. Þótt orðið hafi yfir sér neikvæðan blæ má ekki sjálfkrafa afskrifa græðgina sem neikvæða í fari fólks. ''

Nú vitum við hvaða myndefni þessir útrásar eða öllu heldur hringrásar víkingar voru að horfa á þegar allt var keyrt hér í þrot. 

 Er ekki frekar hægt að segja að græðgi eyðileggi orðstír manna og kanski heillar þjóðar.


Kastljós að standa sig, EKKI BENDA Á MIG.

Ég tek ofan fyrir kastljósi og því góða fólki sem þar starfar. Þátturinn í kvöld var frábær. Umræðan með forseta ykkar, hurðaopnara fjárglæframanna og klappstýra auðdónanna, Ólafi Ragnari Grímssyni. Hann situr enn á Bessastöðum með 32% atkvæði þjóðarinnar á bak við sig og sendir frá sér skilaboð sem allt er tómur misskilningur að hans eigin sögn. Það eina sem vantaði í þá umræðu var að Sigurður G Guðjónsson  lögmaður er mikill vinur Óla og ef ég man rétt þá var hann kosningastjóri hans og bar ábyrgð á því að koma honum þar fyrir. Kaflinn sem kom á eftir með úrklippum af fjárglæframönnum og auðdónum EKKI BENDA Á MIG var stórkoslegur og sýnir hvað þessir menn vor sýktir af siðblindu ekkert af þessu kom þeim við. Ég mæli eindregið með að allir gefi sér tíma í að horfa á Kastljós í kvöld.

Góða kvöldstund.


Viðtalið við Kenneth Rogoff á Rúv í kvöld.

Í kvöld var vital við Kenneth Rogoff á Rúv. Bogi Ágústsson var með þennan flotta mann í frábært viðtal og mæli ég með að allir horfi á þennan þátt. Mr Rogoff er prófessor í hagfræði við Harvard háskóla eins vann hjá Seðlabanka Bandaríkjana og Alþjóðabankanum. Ég vona bara að nú hlusti loks þjóðinn og taki þeim ábendingum sem hann leggur þar fram, við ættum allavega að vera búinn að læra að betra er að hlusta á fagfólk sem komið hefur með ábendingar en stinga hausnum í sandinn eða öllu heldur snjóskaflinn eins og dagurinn í dag er búinn að vera. Við meigum ekki alltaf halda því fram að við séum best og kunnum allt best og að Ísland sé nafli alheimsins, það hefur alla vega ekki verið mjög farsælt eins og sagan hefur sýnt okkur.


Endurreisnarnefnd flokkana

Maður les það og sér í fréttum að tveir flokkar á Íslandi eru að vinna að endurreisn eða öllu heldur einhverskonar naflaskoðun á flokknum sínum. Ekki er hægt að segja það sé að gerast hjá þeim flokki sem bar alla ábyrgð á bankahruni landsins og þeim náttúruhamförum sem yfir þessa þjóð hefur gengið.  Hroki og yfirgangur forsætisráðherra er með eindæmum, nú kemur formaður Framsóknarmann fram, honum er nóg boðið. Segir að ríkisstjórnin hafi ekki uppfyllt þau skilyrði sem Framsókn setti til að verja stjórnina vantrausti. Of mikið ráðherraræði sé miðað við minnihlutastjórn, og stjórnin hafi dregið lappirnar í veigamestu málum. Og til að gera hlutina enn tortryggilegri eru stöllurnar tvær Jóhanna og Bónus Bogga búnar að senda út þau skilaboð hver sé skipstjórinn í þeirra flokki og hinn almenn flokksmaður hefur ekkert með það að segja.  Er ekki komið nóg af þeim hroka sem gengið hefur yfir þessa blessuðu þjóð. Hvað þarf meira til að þetta fólk átti sig á því 

NÚ SÉ KOMIÐ NÓG.  


Of seint að grípa um rassinn þegar kúkurinn er kominn í buxurnar.

Það er með ólíkindum að lesa Moggan í dag að Ingibjörg Sólrún eða eins og ég kalla hana Bónus Bogga skuli ekki finna það hjá sjálfri sér að stíga til hliðar og leyfa þá hreinsun sem nú stendur yfir hér heima. 

Hún ber nefnilega mun meiri ábyrgð á málum en sumir vilja halda fram.  Ég fór og hitti hana í byrjun 2006, lét hana fá öll gögnin í Baugsmálinu og bað hana að lesa þau og kynna sér vel því þar myndi hún sjá hvernig þessi menn vinna og huggsa því ef þessir menn verða ekki stoppaðir þá munu þeir setja þessa þjóð á hliðina. Það eina sem frá henni kom var að byðja mig að fara ekki með þennan fund okkar í fjölmiðla þar sem fram undan væru alþingiskosningar 2006.

Ég ætla að taka mér það bessa leifi að birta kafla sem skrifað var á eina af blogg færslum mínum.

'' Í efnahagsuppgangi elítunnar (ekki okkar) tóku fyrverandi og núverandi ráðamenn sér stöðu með útrásarvíkingunum og bankaræningjunum. Í efnahagshruninu tóku líka stöðu með þessu glæpahyski. Bæði Geir, Ingibjörg og fl. ásamt Pétri Blöndal (fóstra Bjarna Ármanns....stráksins með eldspíturnar), tóku sér stöðu með þessu glæpahyski. Þau gerðu það með því hafa það á orði að við skyldum ekki leita sökudólga í þessu mesta peningaráni íslensks samfélags fyrr og síðar.

Þannig voru það bæði Geir og Ingibjörg sem strax stigu fram í aðdraganda bankahrunsins og vörðu útrásarvíkingana með heimskulegu orðavali sínu. Það voru þau sem vildu ekki sakbenda þá en settu þá, þess í stað, alla þjóðina á sakamanabekk frami fyrir alþjóðasamfélaginu. Þetta er ástæða þess alþjóða samfélagið treystir okkur ekki lengur. Þetta er ástæða þess að reiði almennings hefur beinst gegn stjórnmálaleiðtogum okkar og fyrri ríkisstjórn en ekki útrásarvíkingunum. Þetta er dapurleg staðreynd, en svona er það nú samt. Staðreyndin er nefnilega sú að gullfiskaminni þjóðarinnar nær ekki lengra en dynjandi áróðurinn hverju sinni. ''

 Það eina sem þjóðinn á eftir að gera er losa sig við forseta ykkar, hurðaopnara fjárglæframanna og klappstýru auðdónanna, Ólafi Ragnari Grímssyni. Hann situr enn á Bessastöðum með 32% atkvæði þjóðarinnar á bak við sig og sendir frá sér skilaboð sem allt er tómur misskilningur að hans eigin sögn.´

Þá first er hægt að búa til gott NÝTT ÍSLAND.


mbl.is Ingibjörg býður sig fram
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Conspiracy of fools. Sönn saga um Bónus á íslandi.

Í kvöld verður Rúv með heimildarmynd sem eingin má missa af ENRON OG ALLIR SNILLINGARNIR. En hún er byggð upp úr bók sem heitir CONSPIRACY OF FOOLS, Ég las þessa bók 2005 þegar hún kom út og átti ég erfitt með að sjá ekki sömu mynd sem í henni var og það sem var að gerast á þessum tíma hér heima. Þegar ég kom heim til Íslands út af Baugsmálinu 2005 þá tók ég eintak af þessari bók í hljóðdiskaformi og gaf Sveini Ingiberg Magnússyni lögreglufulltrúa hjá Ríkislögreglustjóra og sagði  að hann ætti að hlustaðu á þetta þá skildi hann hverning þessir menn vinna og huggsa sem hann væri að ransaka.

Ég tel að hér heima þurfi að setja lög eins í Bandaríkjunum þar sem stjórnarmenn fyrirtækja skrifa undir yfirlýsingar þess eðlis að þeir persónulega samþykki uppgjör og um leið staðfesta lögmæti bókhaldsgagna fyrirtækja sem þeir reka og sjórna. Persónulegir hagsmunir stóru fyrirtækjana, bankamanna og endurskoðendanna hér á Íslandi eru gríðarlegir, þannig að það er mikið atriði að þeir sjálfir beri ábyrgð fyrir því að ekki sé verið að KOKKA bókhaldið og kynna þannig væntanlegum hluthöfum og þjóðinni upplognar og falsaða mynd af rekstri og stöðu fyrirtækja hér heima.


Peð á skákborði auðs í boði Baugs

Það er ótrúlegt hvað þjóðinn hefur látið yfir sig ganga síðastliðin 10 ár. Baugur Group og þeir aðilar sem þar stýrðu hafa gengið um á skítugum skónum nánast yfir allt Íslenskt samfélag og skilið eftir sig djúp sár sem seint munu gróa.  Nú hefur það komið fram að Baugur Group hafi stýrt kaupum á stofnfjárhlutum í Sparisjóði Hafnarfjarðar bakvið tjöldin og er þetta dæmigert siðeysi sem gengið hefur í viðskiptalífinu hér á landi í boði Baugs. 

Maður les það aftur og aftur, dag eftir dag hvernig framkoma þessara manna hefur verið í viðskiptalífinu hér heima.  Þakkar maður bara fyrir að skotvopn séu ekki seld hér í lausasölu eins og þar sem ég hef búið í háttnær 23 ár.

Það mætti halda að stjórnendur Baugs Group væru útungunarvél fyrir einhverja mesta siðvillumenn sem Íslenskt viðskiptalífi hefur alið. Ég segji þetta eftir að hafa lesið fréttir undanfarna daga og vikur þar sem fyrirtæki í eigu Baugs Group eða aðila tengdir þeim koma fram sem leikmenn.

 Hér eru nokkur dæmi:

''Neytendastofa hefur lagt 440 þúsund króna stjórnvaldssekt á Húsasmiðjuna hf. vegna útsölu félagsins. ''

''Samkeppniseftirlitið hefur komist að þeirri niðurstöðu að Hagar, sem eiga og reka Bónusverslanirnar, hafi misnotað markaðsráðandi stöðu sína gegn keppinautum sínum. Með tilliti til mikilla hagsmuna neytenda ákvað Samkeppniseftirlitið að sekta félagið um 315 milljónir króna. Brotið er gegn 11. grein samkeppnislaga en þar er lagt bann við hvers konar misnotkun á markaðsráðandi stöðu.''

''Í greinargerð sem þeir Þórhallur Örn Guðlaugsson og Hilmar Ragnarsson, sendu frá sér saka Teymi um viðskiptasóðaskap.''

 ''Samkeppniseftirlitið ákvað  í dag að leggja þriggja milljóna króna dagsektir á Teymi hf. þar sem fyrirtækið hefur ekki farið að fyrirmælum Samkeppniseftirlitsins um breytingar á stjórn IP-fjarskipta (Tals), sem mælt var fyrir um í ákvörðun til bráðabirgða frá 26. janúar sl.''

''Hæstiréttur staðfesti dóm Héraðsdóms í meiðyrðarmáli Magnúsar Ragnarssonar fyrrum sjónvarpsstjóra Skjás eins gegn 365 miðlum ehf.
Hæstiréttur staðfesti í dag dóma, sem sakborningar í Baugsmálinu hlutu í Héraðsdómi Reykjavíkur.  Tryggvi Jónsson, fyrrverandi aðstoðarforstjóri Baugs, dæmdur í 12 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir ýmis brot, þar á meðal fjárdrátt, og Jón Ásgeir Jóhannesson, stjórnarformaður Baugs fékk
3 mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir að hafði áhrif á bókhaldslega stöðu almenningshlutafélagsins Baugs.''

''Gruna FL Group um lögbrot. Skattyfirvöld vilja frekari skýringar á nokkrum kostnaðarliðum í rekstri FL Group á árunum 2005-2007 til þess að ganga úr skugga um að hlunnindi starfsmanna félagsins hafi ekki verið skráð sem rekstrarkostnaður. Hlunnindi eru enda skattskyld og því lögbrot ef ekki er greiddur skattur af þeim''

Og svo þetta í dag ''Mál ákæruvaldsins á hendur Jóni Ásgeiri Jóhannessyni, Kristínu Jóhannesdóttur, Tryggva Jónssyni, Baugi Group og Gaums, vegna meintra skattalagabrota, var þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur í dag.''

 

Maður spyr sig hvað kallast þetta annað en SIÐVILLA á hæsta stigi.

 

 


Grein Hjörleifs Jakobssonar sem birt var í Fréttablaðinu síðastliðinn laugardag.

Ég tek mér það bessaleyfi að birta þessa frábæru grein sem birt var í Fréttablaðinu síðastliðinn laugardag og mæli með að allir lesi hana því ég tel að hér hafi Hjörleifur hitt naglann beint á höfuðið.   
  
'' Hví er krónan í gjörgæslu?
Í kjölfar bankahrunsins hafa margir velt vöngum yfir bágri stöðu krónunnar og orsökum hrakfara hennar. Margir vilja kenna bönkunum sálugu um.

Í kjölfar bankahrunsins hafa margir velt vöngum yfir bágri stöðu krónunnar og orsökum hrakfara hennar. Margir vilja kenna bönkunum sálugu um. Því miður verður að grafa dýpra eftir raunverulegum ástæðum núverandi efnahagsstöðu.

Árið 2003 hófust umfangsmestu framkvæmdir Íslandssögunnar með gerð Kárahnjúkavirkjunar og byggingu álvers á Reyðarfirði. Framkvæmdirnar námu nærri þriðjungi landsframleiðslu og voru alfarið unnar með erlendu fjármagni. Við upphaf þessa mikla framkvæmdaskeiðs var ljóst að til mótvægis þyrftu stjórnvöld að draga saman í ríkisrekstri ella ylli svo stór erlend fjárfesting mikilli þenslu, ofrisi krónunnar og skekktri samkeppnisstöðu undirstöðuatvinnugreina, þ.e. sjávarútvegs og iðnaðar. Ríkið brást hins vegar í aðhaldsaðgerðum og valdi þenslutímann til að slaka á í ríkisfjármálum með lækkun tekjuskattshlutfalls, helmingun matarskatts, aflagningu ýmissa annarra skatta og hækkun lánshlutfalls íbúðarlána. Afleiðingin varð sú að frá 2003 til 2007 jókst einkaneysla um nær 40% á föstu verðlagi.

Góða veislu gjöra skal

Þegar árið 2004 brást Seðlabankinn við vaxandi verðbólguþrýstingi með vaxtahækkunum sem jafnframt styrktu gengi krónunnar. Hærra gengi vann á móti verðbólgu skamma hríð með lækkun innflutningsverðs en skapaði falskan kaupmátt sem örvaði einkaneyslu og olli miklu þjóðhagslegu ójafnvægi með viðskiptahalla er nam tugum prósenta af landsframleiðslu. Viðskiptahallinn var síðan fjármagnaður með erlendri skuldasöfnun. Nokkurt hlé varð á þessari þróun 2006 þegar krónan féll og verðbólga hækkaði í 8,5%. Margir vonuðu að hagkerfið væri að ná jafnvægi enda hillti undir lok stóriðjuframkvæmda. Reyndin varð önnur og enn var bætt á eldinn með kosningafjárlögunum 2007 sem sýndu að ríkisstjórn og Seðlabanki reru ekki í sömu átt. Bitlítið úrræði Seðlabankans var að hækka stýrivexti sem voru komnir í 13% í byrjun árs 2007. Með þátttöku okkar í EES undirgengumst við fjórfrelsið, m.a. frjálst flæði fjármagns. Háir stýrivextir vöktu athygli á krónunni og skyndilega streymdu hingað peningar úr öllum áttum til að njóta hins mikla vaxtamunar. Staða útlendinga með krónunni óx úr 100 milljörðum í 800-1000 milljarða. Þetta hjálpaði verðbólgumarkmiðum Seðlabankans um hríð; gengið hætti að veikjast og verðbólguskotið frá miðju ári 2006 gekk að mestu til baka ári síðar. Sökum hárra vaxta hérlendis töldu Íslendingar nú þjóðráð að skulda í erlendri mynt. Fyrirtækin juku erlendar skuldir um 100% og heimilin, sem áður skulduðu eingöngu í krónum, skulduðu skyndilega 100-200 milljarða í erlendum lánum. Skynsamlegt hefði verið á þessum tíma að Seðlabankinn yki gjaldeyrisvaraforðann verulega til að geta mætt flæðisbreytingum á gjaldeyrismarkaði en það var því miður ekki gert.

Blaðran springur

Í ársbyrjun 2008 lá fyrir að dæmið gengi ekki upp. Við höfðum búið við falskan kaupmátt og eytt um efni fram. Við vorum ekki svona rík, gengið var bara vitlaust. Við lifðum á lánum og veislan var á enda. Útlendingar spáðu harðri lendingu. Þeir byrjuðu að fikra sig út úr krónunni og Íslendingar einnig. Of miklu var hlaðið á þessa litlu mynt og Seðlabankinn hafði ekki mótvægisafl. Hrunið var óumflýjanlegt, bara spurning um tíma. Krónan veiktist allt árið 2008 og verðbólgan var á stöðugri uppleið. Innflutningur á varanlegum neysluvörum fraus og byggingariðnaðurinn stefndi í alkul. Við blasti grjóthörð lending íslensks efnahagslífs?… og svo fraus alþjóðlegt fjármálakerfi og íslensku bankarnir urðu úti á berangri.

Það er vandasamt að starfrækja örmynt eins og krónuna og búa við frjálst flæði fjármagns. Stjórnvöld verða að sýna sérstaka aðgæslu til að missa ekki verðbólguna úr böndunum og Seðlabankinn þarf ávallt að hafa nægilegan gjaldeyrisvaraforða til að mæta snöggu flæði úr landi. Séríslensk vísitölutenging lána gerir illt verra. Ríkisstjórn og Seðlabankinn brugðust á sinni vakt og þess vegna býr íslenska þjóðin nú við gjaldeyrishöft.

Íslenskri þjóð og viðskiptalífi er nauðsyn að losa um gjaldeyrishöftin. Þau eru myllusteinn um háls atvinnulífsins og útiloka allar tilraunir um að endurvekja traust á kerfinu. Semja verður við erlenda fjárfesta, sem eiga krónur í kerfinu, um greiðslu í erlendri mynt nú eða seinna. Jafnframt er fullreynt að íslenska krónan sé okkar framtíðargjaldmiðill. Evran og ESB er nærtækasta leiðin en skoða þarf fleiri kosti. Það hjálpar hins vegar í þeirri vinnu að auðveldara er að eiga við krónuna á krepputímum en þenslutímum.

Höfundur er forstjóri Kjalars hf ''


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband