Svar vegna lesendabréf þíns Jóhannes Jónssonar í Fréttablaðinu nú um daginn.

Sæll Jóhannes Jónsson.

Ég sé mig tilneyddan að svara lesendabréfi þínu sem þú ritaðir í dagblað ykkar feðga, Fréttablaðið í nóvember sl. þar sem þú kvartar yfir umfjöllun Morgunblaðsins á málefnum Haga og móðurfélagi þess 1998 ehf. Það er enginn að ráðast á fyrirtækið Hagar Jóhannes Jónsson.   Það er enginn að ráðast á það góða starfsfólk sem vinnur hjá Högum. það er verið að gagnrýna  að stuttu fyrir hrunið skulið þið- enn og aftur - fá tugi milljarða lán til að kaupa eina verðmætustu eign Baugs til ykkar sjálfs án þess að leggja fram krónu úr eigin vasa. Það er verið að gagnrýna þúsunda milljóna afskriftir til ykkar sama tíma og íslenskt samfélag berst í bökkum og þúsundir fjölskyldna sjá fram á að missa húsnæði sitt þar sem skuldir móðurfélags Haga, 1998 ehf. ásamt skuldum Haga eru um 50 milljarðar og það er stærðfræðilega útilokað að Hagar standi undir slíkum skuldum. Það er verið að gagnrýna að þið tókuð meira að segja það fjármagn sem Baugur fékk fyrir Haga í eigin vasa, þar sem þið létuð Baug kaupa af ykkur hlutabréfin í Baug enda félagið löngu orðið gjaldþrota á þessum tíma og hlutabréfin því verðlaus. Ég er ekkert hissa á því Jóhannes Jónsson að þér svíði þessi mikla umfjöllun um skuldastöðu ykkar feðga.   Það hlýtur að vera ansi sárt að standa frammi fyrir alþjóð með allt ykkar svokallaða viðskiptaveldi - hrunið til grunna,  með gríðarlegu tjóni fyrir íslenskt samfélag. Þjóðin er nefnilega búinn að átta sig á því  Jóhannes Jónsson, að öll ykkar viðskiptasnilld fólst bara í stórfelldum lántökum og svo enn meiri lántökum, gegndarlausu sukki og bruðli. Meira að segja brúðkaup aldarinnar árið 2007 hjá syninum virðist hafa verið "skuldsett yfirtaka" ef marka má fréttir DV undanfarið ! Bónusfeðgar stóðu einu sinni fyrir "ekkert bruðl". En þjóðin hefur vaknað og uppgötvað að Baugsmenn standa fyrir eitt mesta bruðl íslandssögunnar sbr.   þúsunda milljóna lúxusbátinn 101 , þúsunda milljóna skíðaskála í Frakklandi, þúsunda milljóna einkaþotur, þúsunda milljóna villur í New York, London og svo auðvitað stóra milljóna dollara húsið á Flórida ásamt ýmsum öðrum leiktækjum um allan heim svo sem þyrlum, Porche, Bugatti, Hummer og öðrum lúxusbílum og svo leynifélögum á Tortóla, Lúxemborg, Cayman eyjum og víðar. Og Monakó partýið fræga 2007 sem kostaði nokkur hundruð milljónir með Tinu Turner sem var ráðinn til að syngja "Simply the best" er auðvitað toppurinn á ruglinu,  enda hrundi allt ísland ári seinna ásamt öllu ykkar svokallaða "viðskiptaveldi" sem var ekkert annað en stærsta skuldsetning íslandssögunnar.
Bara FL Group tapaði 350 ÞÚSUND MILLJÓNUM króna 2008 sbr. fréttir og gjaldþrot Baugs er uppá 320 ÞÚSUND MILLJÓNIR króna.
 Samtals gera þetta 670 ÞÚSUND MILLJÓNIR og þá vantar öll hin Baugsfyrirtækin eins og Teymi,Nyhedsavisen,  365 miðlar, Landic Property, Dagsbrún, BYR, Glitnir sem öll eru kominn á hausinn. Til samanburðar eru islensku fjárlögin í kringum 450 þúsund milljónir sem eiga standa undir því að reka íslenskt samfélag fyrir 320,000 íslendinga. Græðgin var svo mikil og skuldsetningin svo brjálæðisleg að meira að segja gulleggið ykkar,  Bónus,  var lagt undir og maður skilur vel að það skuli svíða töluvert að mögulega munu þið feðgar missa það einnig frá ykkur og þá er nú stutt í fall 365 miðla sem Hagar halda uppi með auglýsingatekjunum. Þú talar um róginn og fráleitt að tengja þessi risa gjaldþrot við son þinn Jón Ásgeir Jóhannesson.  Innst inni veistu þó betur Jóhannes Jónsson. Þú ert búinn að standa í áralöngum málaferlum í Baugsmálinu þar sem viðskiptahættir sonar þíns Jóns Ásgeirs  voru opinberuð. Farðu bara á www.baugsmalid.is og horfðu t.d. á myndböndin sem yfir 200.000 islendingar hafa skoðað. Þar opinberast blekkingarnar, skjalafalsið, bókhaldsbrellurnar, leynifélögin og lepparnir sem hafa einkennt viðskiptahætti sonar þíns Jóns Ásgeir allan hans feril. Þegar hinn ótrúlegi  rekstrarkostnaður FL Group var 6.1 milljarður árið 2007 var sonur þinn Jón Ásgeir stjórnarformaður FL Group en sagði við fjölmiðla að hann vissi ekkert af þessum kostnaði ! Hans nánasti samstarfsfélagi, Pálmi Haraldsson,  spilar lykilhlutverk í Stím málinu og Sterling svikamyllunni og verður fróðlegt að sjá þegar lögreglan lýkur rannsókn sinni hvaða aðrir aðilar tengjast þessum stórfelldu glæpum.    Lepparnir hans Jóns Ásgeirs gerðu BYR gjaldþrota þar sem ungabörnum voru veitt lán frá Baugsbankanum Glitni. Glitnir fór á hausinn og stærstu skuldarar bankans ásamt stærstu skuldum peningasjóðs 9 þar sem almenningur geymdi sparifé sitt var "viðskiptasnillingurinn" Jón Ásgeir. Um daginn kom fram að Bjarni Ármannsson neyddist til að skila 650 milljóna gróða tilbaka þegar hann seldi hlutabréfin sín í Glitni en það kom fram fyrir dómi að Bjarni samdi um þennan makalausa siðlausa gerning við aðeins einn aðila:  Jón Ásgeir Jóhannesson sem stýrði öllu innan Glitnis eins og þú veist. Bjarni Ármannsson samdi EKKI við bankaráðið eða bankastjórnina - hann samdi einungis við son þinn Jón Ásgeir Jóhannesson. Og finnst þér nú ekkert skrýtið Jóhannes minn að sonur þinn Jón Ásgeir Jóhannesson sem notar hótanir og lögfræðideild sína miskunnarlaust gegn hverjum sem gagnrýnir hann eða fjallar um efni sem honum finnst óþægilegt, að þá hefur hann ALDREI séð ástæðu til að leiðrétta þær upplýsingar sem má finna á www.baugsmalid.is   ? Ekkert frekar en Jón Ásgeir Jóhannesson sá ekki ástæðu til að svara opnu bréfi frá mér í morgunblaðinu um sl.áramót þar sem ég bað hann að útskýra t.d. eiðsvarna framburði fyrrum stjórnarmanna almenningshlutafélagsins Baugs sem sögðu frá stórfelldum blekkingum Jóns Ásgeirs Jóhannesson,  ásamt endurskoðanda leynifélagsins Fjárfars ehf. sem sagði fyrir dómi hvernig bókhald félagsins var byggt á fölsuðum gögnum og hann hafi verið rækilega blekktur af Jóni Ásgeiri Jóhannesson?  Sá aðili fékk réttarstöðu grunaðs manns á tímabili og ákvað að hætta sem endurskoðandi. Hann starfar núna í eftirlitsdeild ríkisskattstjóra og eltir Jón Ásgeir Jóhannesson og aðra útrásarvíkinga og reynir að fá eitthvað af þeim þúsundum milljónum sem þessir virðulegu föðurlandsvinir hafa komið undan til erlendra skúffu fyrirtækja. En af hverju heyrist ekkert í syninum lengur Jóhannes minn ? Ætli skýringin sé ekki sú, að jafnvel færustu lögmenn geta ekki stöðvað sannleikann,  því sannleikurinn sigrar alltaf að lokum. Hvenær skyldi gamli kaupmaðurinn sem var alla tíð á móti þessu bruðli, sukki og svínarí einfaldlega viðurkenna fyrir sjálfum sér að viðskiptahættir sonarins eiga ekkert skylt við eðlilega, sanngjarna eða réttmæta viðskiptahætti ? Hvenær skyldi maðurinn sem þjóðin dáist að fyrir að hafa byggt upp Bónus og notið virðingar og velvildar hjá þjóðinni , vakna og horfast í augu við sannleikann ? Eða er þetta bara allt saman Davíð Oddsyni og Morgunblaðinu  að kenna Jóhannes Jónsson ?

Trúir þú því virkilega sjálfur ?

Virðingarfyllst,

Jon Gerald Sullenberger

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Arinbjörn Kúld

Þetta er sú besta samantekt sem ég hef lesið um þetta tiltekna mál. Hafðu þökk fyrir.

Jólakveðja að norðan.

ES. Svo bíðum við norðlendingar eftir Kosti norður yfir heiðar.

Arinbjörn Kúld, 26.12.2009 kl. 14:25

2 identicon

SFO í Bretlandi skoðar þessi mál og þeir eru leiftursnöggir að rekja peningaslóðir og noya ekki snigla til þess að ná í fé og við höfum fengið forsmekkinn við setningu hryðjuverkalaganna.

Þeir íslensku burgeisar sem búa í luxusvillum í Bretlandi þar sem íbúaskatturinn er um 3000 pund á mánuði luxusvillurnar í Luxemburg og villurnar á Florida verða allar haldlagðar af SFO og þessir menn fá gistingu hjá þeim þegar málið er tilbúið og geymdir á meðan jafnvel mánuðum saman eins og einn landi okkar hefur fengið að kenna á.

Það eru nefnilega ákvæði í þessum hryðjuverkalögum sem veita SFO gífurlegt vald og þeir nota það mjög skynsamlega fara sér hægt byggja góðan grunn hafa bráðina í skyggningu og stökkva svo leyftursnöggt á hana til langrar gistidvalar án aðstoðar lögmanna á fyrstu stigum.

Þór Gunnlaugsson (IP-tala skráð) 26.12.2009 kl. 15:22

3 Smámynd: Óskar Arnórsson

Ótrúlega flott og skýrt! þegar þetta mál og þessi aragrúi mála er settur upp svona, verður hann skiljanlegur. Takk fyrir þessa úttekt...algjör snilld!

Óskar Arnórsson, 26.12.2009 kl. 17:18

4 Smámynd: Eyjólfur Jónsson

Laglega gert dæmi Jón Gerald og farðu norður,austur og vestur með Kostinn þinn. Það mun lífga upp á þessa landshluta.

Wolfang

Eyjólfur Jónsson, 26.12.2009 kl. 20:30

5 Smámynd: Óskar Þorkelsson

takk fyrir þessa samantekt Jón Gerald

Óskar Þorkelsson, 27.12.2009 kl. 00:51

6 identicon

það skemmtilegasta við þennann dásamlega pistil þin Jón Gerald  er að þú gefur alveg einkennilega lika lysingu á Baugsmálum og  og Frú Eva Joly i jólabókinni sinni  "Hversdagshetjur "  sem segir frá ótal dæmum spillingar innan og utan Evrópu ,  sem á ser engin landamæri i óþverraskap og mafiósum sem einkis svifast    ! ! en það er nú kanski tilviljun , ????????????????

Ragnhildur H. (IP-tala skráð) 27.12.2009 kl. 01:36

7 Smámynd: Guðrún María Óskarsdóttir.

Sannleikurinn mun gera menn frjálsa og þessi samantekt er snilld.

kv.Guðrún María.

Guðrún María Óskarsdóttir., 27.12.2009 kl. 02:14

8 Smámynd: Ragnhildur Kolka

Þennan pistil á að ramma inn og hengja upp á vegg á hverju heimili þessa lands. Þakka þér fyrir Jón Gerald 

Ragnhildur Kolka, 27.12.2009 kl. 11:23

9 Smámynd: Predikarinn  -  Cacoethes scribendi

Þakka þér pistilinn kæri bloggvinur.

Þú skautar alveg framhjá því samt í þessari góðu samantekt að faðirinn, Jóhannes, var innmúraður í mörg þessara viðskipta sem og blekkinga eins og lesa má í dómskjölunum sem þú blessunarlega settir á netið. Það voru sennilega afdrifaríkustu mistök sonarins og lögmanna hans að hann vildi í bræði sinni draga þig inn í málið sem sakborning. hann var annars vegar þáttakandi í blekkingunum og svindlinu ellegar vissi allt um hitt sem hann setti ekki græðgisþrútinn fingur sinn á sjálfur.

Jóhannes er ekkert saklaus í bruðlinu eins og sjá má m.a. í höllinni sem hann „á” í Lake Nona skuldlausa auðvitað, sennilega á nafni skúffufyrirtækis á Tortola kannski ? Kæmi ekkert á óvart.

Predikarinn - Cacoethes scribendi , 28.12.2009 kl. 11:38

10 Smámynd: Anna Sigríður Guðmundsdóttir

Gamli Jóhannes á að stíga fyrsta skrefið í að viðurkenna mistökin og hætta öllu samstarfi við son sinn Jón Ásgeir. Það er ekki samkvæmt hugsjónum gamla mannsins að þvælast með syninum inn í allt þetta rugl. En stundum fórna foreldrar sér fyrir spillt börn sín og verja allar þeirra gjörðir, sem þjónar engum tilgangi fyrir neinn.

Jón Ásgeir verður sjálfur sem fullorðinn maður að svara fyrir sínar gjörðir en ekki láta gamla mannin gera það.

Anna Sigríður Guðmundsdóttir, 30.12.2009 kl. 14:59

11 Smámynd: Óskar Þorkelsson

hvað veist þú um Jóhannes sem við hin vitum ekki Anna ? Að mínu mati lærði JÁJ vel af karli föður sínum og er í raun mildari útgáfan af þeim tveim..

Óskar Þorkelsson, 30.12.2009 kl. 15:27

12 Smámynd: ThoR-E

Að þessir menn gangi lausir í dag finnst mér ótrúlegt.

Ponzi svindlarinnar vestanhafs fékk 150 ára dóm eftir nokkra mánuði frá handtöku.

Hér hafa flestir svindlararnir varla verið yfirheyrðir, hvað þá handteknir.

Held að sérstakur saksóknari þurfi að fara að herða sig. 

ThoR-E, 2.1.2010 kl. 16:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband