23.3.2009 | 23:09
„Stærsta bankarán Íslandssögunnar“
Þetta er stærsta bankarán Íslandsögunnar og augljóslega hluti af stærri átökum sem hafa ekki farið fram hjá neinum. Nú hafa menn náð ákveðnum hefndum og hljóta að vera ánægðir," segir hann og neitar því að standa uppi eignalaus í dag, en þetta sé auðvitað veruleg blóðtaka" og augljóslega versta áfall" sem hann hafi orðið fyrir á sínum viðskiptaferli.
Miðað við þær fréttir sem síðar hafa verið birtar eftir að þessi ósköp dundu yfir þjóðina lítur út fyrir að það voru einmitt Jón Ásgeir og hans félagar, þessir "30 til 40" bankamanna sem hafur algjörlega arðrænt heila þjóð af tekjum sínum næstu áratugina og orðstír íslands á erlendri grund.
Þetta myndband er á bloggsíðu Láru Hönnu Einarsdóttir og tek ég mér það bessaleyfi að birta hér.
Maður spyr sig hverning er hægt að ræna banka sem búið er að ræna og ekkert eftir nema notuð húsgögn, það var ekki einu sinni hægt að nota nafnið GLITNIR því búið var að eyðileggja það líka.
Sjón er sögu ríkari
http://larahanna.blog.is/blog/larahanna/video/5598/
Græðgi þessara manna hefur eyðilaggt orðstír heillar þjóðar.
Heilbrigð skynsemi óskast.
Viðskipti og fjármál | Breytt 24.3.2009 kl. 09:37 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.3.2009 | 18:12
Minnisblað Davíðs Oddssonar Seðlabankastjóra febrúar 2008.
Fulltrúar erlendu bankanna mátu stöðu Íslands sem alvarlega eða grafalvarlega.
Þeir tjáðu mönnum að þeir höfðu mikla vantrú á íslenska bankakerfið.
Í minnisblaði af fundi starfsmanna Seðlabanka Íslands með fulltrúum stórra banka í London frá því í febrúar 2008 kemur fram að ýmsir töldu að Glitnir væri í verulegum vandræðum.Iðulega var vísað í ferð þá til Bandaríkjanna, þar sem Glitnismenn komu heim auralausir, en einnig var af hálfu sumra bent á að eigendur Glitnis væru í þröngri stöðu eða gætu fljótlega lent í vandræðum, svo baklandið stæði alls ekki sterkt.
Hér heima var okkur tjáð að Íslendingar væru einstakir snillingar og eina markmið útlendinga væri að hafa eitthvað af íslensku þjóðinni og við sannfærð um að útlendingar væru tapsárir aumingjar.
Davíð Oddsson sagði að þessi skýrsla hafi hann lesið upp fyrir forystumönnum ríkisstjórnarflokkanna, ráðherra og embættismenn.
Samt var ekkert gert!!!!
Bankarnir voru búnir að vera þegar um áramótin 2007/2008.
Ríkisstjórnin taldi þetta vera ímyndavandi bankanna, Ingibjörg Sólrún og Geir Haarde fóru til Kaupmannahafnar og New York til að kynna íslenskt efnahagslíf og ef ég man rétt þá var Jón Ásgeir Jóhannesson með í þeirri ferð.
Hvar var Jónas Fr. Jónasson, forstjóri Fjármálaeftirlitsins, í öllu þessu og ég tala nú ekki um Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra?
Allt þetta fólk kaus að trúa skýringum íslensku bankasnillingana, en ekki skýrslu Seðlabanka Íslands. Og þar sem allt þetta var Davíð að kenna, alla vega voru Baugsmiðlarnir búnir að segja okkar það, þá langar mig að bæta við kafla sem haft var eftir Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar vorið 2008.
>>>>>>>>>>
Ávarp á SFF deginum 2008
10. apríl 2008
Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra
Góðir gestir
..........Ágætu fundarmenn.Mig langar til að nota þetta tækifæri og þakka Samtökum fjármálafyrirtækja fyrir afar gott samstarf að undanförnu. Sérstaklega ber að þakka þátttöku SFF við úrlausn vandasamra ágreiningsmála er varða ýmsa gjaldtöku fjármálastofnanna fyrir eigin reikning og annarra. Að sjálfsögðu geta hertar reglur með starfsemi fjármálafyrirtækja verið þeim baggi og því ber að fara varlega á þessu sviði.Það ber þó sérstaklega að viðurkenna þann mikla skilning sem SFF hefur sýnt mikilvægi þess að skýra rétt neytenda á sviði fjármálaþjónustu og einfalda samskipti þeirra og fjármálafyrirtækja sem mest.Ég óska ykkur öllum hjartanlega til hamingju með SFF daginn,, sagði Björgvin G. Sigurðsson, viðskiptaráðherra Samfylkingarinnar vorið 2008.
Græðgi þessara manna hefur eyðileggi orðstír heillar þjóðar.Heilbrigð skynsemi óskast.
Njótið dagsins.
Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 18:17 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
23.3.2009 | 14:30
Flókin eignatengsl á íslandi.
Þjóð komin á heljarþröm
Á undanförnum árum hafa skattayfirvöld hvað eftir annað vakið athygli á þeirri nauðsyn að gagnsæi sé í öllu regluverkinu og að skatturinn fái allar upplýsingar. Þegar heil þjóð er komin á heljarþröm er það eins og köld vatnsgusa að samt skuli haldið í leynd gagnvart skattyfirvöldum.
Leyndin er, og hefur verið, meginvandamálið. Fjölmargir eiga félög og fyrirtæki erlendis og það er ekkert athugavert við það meðan viðkomandi aðilar gera grein fyrir því á framtölum sínum.
Annað mál er svo: Af hverju eru menn að stofna fyrirtæki erlendis sem einungis virðist vera geymsla á óskilgreindum eignum.
Í stjórnir slíkra fyrirtæka setjast þeir jafnvel ekki sjálfir heldur sest fulltrúi banka ásamt einhverjum tveimur öðrum fulltrúum, jafnvel eru það félög sem sitja í stjórnum slíkra félaga. Enginn utanaðkomandi og þar með talið skattyfirvöld vita fyrir hverju þessi félög standa og hvað fer fram í þeim.
Þarna getur skapast aðstaða til brota gegn skattalögum, samkeppnislögum og fleiru ef menn eru innstilltir á slíkt. Það verður því að lyfta þessum huliðshjálmi eða spyrna við fæti með öðrum aðgerðum, eins og verið er að gera á alþjóðavettvangi.
Flókin eignatengsl
Árið 2004 gerðum við Indriði H. Þorláksson og Snorri Olsen úttekt á þessu í skýrslu um umfang skattsvika og það var niðurstaða okkar að þarna væri um gríðarlega fjármuni að ræða. Það er erfitt að slá á tölu en það er alveg ljóst að þetta eru milljarðar, jafnvel tugir milljarða.«
Hvaða einstaklingar eiga í hlut?
Almennt séð eru þetta ekki venjulegir launþegar. Þetta eru athafnamenn, en ótrúlega margir slíkir tóku þátt í útrásinni og eiga mörg félög. Það er erfitt að skilja flóruna í þessum félögum því þar eru gríðarlega flókin eignatengsl.
Í greiningu hjá Ríkisskattstjóra hefur komið í ljós að menn eiga til dæmis í félagi A og B og síðan á félag B í félagi A og síðan í félagi C og koll af kolli. Það virðist ekki vera nein heildstæð brú í þessu og þær spurningar vakna hvort þetta flækjustig sé til þess að fela eitthvað, ekki endilega einungis gagnvart skattyfirvöldum heldur líka fyrir samkeppnisaðilum eða meðeigendum.
Það sýndi sig á árum áður að enginn vissi hver átti fyrirtækið Fjárfar, sem kom við sögu í Baugsmálinu.
Fyrir nokkrum árum vissi enginn hver átti Fréttablaðið. Voru þetta óeðlilegir viðskiptahættir? Verðum við ekki að gera þá kröfu til manna sem eru í viðskiptum að þeir hafi almennt gagnsæi og gott siðferði að leiðarljósi.«
Heldurðu að það hafi verið nauðsynlegt að verða fyrir áfalli eins og í haust til að tekið væri á þessu umhverfi? Hefðu menn ekki bara haldið áfram eins og ekkert væri eins lengi og þeir hefðu komist upp með það?
Ef þetta er rétt ályktun hjá þér er það mjög nöturlegt að heil þjóð þurfi að fara á hnén til að menn sjái að sér. Og jafnvel þótt þjóðin sé komin á hnén eru menn samt að reyna að koma í veg fyrir gagnsæi.
Hvernig er að standa í baráttu eins og þessari?
Afar margir eru ánægðir með að skattyfirvöld séu að knýja fram gagnsæi. Skattyfirvöld hafa í aðalatriðum tvö meginmarkmið: að tryggja að allir greiði rétta skatta og gera það eins auðvelt og þægilegt og unnt er að telja rétt fram. Seinna markmiðið er komið vel áleiðis, og vonandi tekst á næstu tveimur árum, að gera skil skattframtala þannig að jafnvel 50-60 prósent þjóðarinnar þurfi ekkert annað að gera en að staðfesta framtalið. Hitt markmiðið, að allir greiði rétta skatta er aðalmarkmiðið en bæði flóknara og erfiðara. Þar verða menn að knýja á um gagnsæi og tryggja að eftirlit sé virkt.
Því miður held ég að á komandi árum muni samfélag okkar líða fyrir græðisvæðinguna.
Græðgi þessara manna hefur eyðileggi orðstír heillar þjóðar.
Heilbrigð skynsemi óskast.
Njótið dagsins.
22.3.2009 | 12:54
Morgunblaðið í dag Sunnudaginn 22 Mars. Mogginn klikkar ekki.
Það er ekki hægt að segja annað en að Morgunblaðið er að standa sig (gæti ekki hugsað það til enda ef ekki væri Mogginn). Að vanda er Morgunblaðið fullt af fróðleik og fór svo að allur morguninn fór í að lesa hann, en upp úr stóðu nokkrar greinar sem er algjör skyldulesning og vil ég benda á þær greinar hér.
Grein Þórð Snæ '' SVONA SELDI RÍKIÐ BANKANA'' hér kemur fram góð lýsing á því hvernig kaupin gerast á eyrinni. Pælið í því Landsbankinn fór á c.a. 23 Milljarða en Samson hópurinn fékk 45,8 prósent á 11,2 milljarða króna (það var verið að borga arð til Byr hluthafa samtals 13 Milljarða króna).
Næsta grein sem þið verðið að lesa er á blaðsíðu 10 ''Fíll í póstulínsverslun'' eftir Agnesi Bragadóttur. Þar tekur hún fram að það sé algjört lykilatriði að Fjármálaeftirlitið fái ÖLL GÖGN til að geta rannsakað bankahrunið því þjóðin verður aldrei sátt við annað.
Eins vil ég benda á grein Agnesar á blaðsíðu 20 '' SAMEINUÐ SAMFYLKING EN HVERSU LENGI '' það er mikið til í því sem þar kemur fram. Ef hún Jóhanna Sigurðaradóttir á að ná utan um þessa loftbólu eins og formaður Framsóknar sagði hér fyrir nokkru þá tel ég að allt það góða fólk sem í Samfylkinguni er fari með bænir á hverju kvöldi því hún þarf á öllum þeim styrk og bænum sem hún getur fengið, ég óska henni alls hins besta í þessari baráttu um að halda utan um þessa hjörð.
Svo er það algjör skildulestning grein 'SKOÐUN EINARS MÁ '' BARÓNAR ALLRA LANDA'' blaðsíðu 30. Maðurinn er náttúrlega snillingur með pennann og allt það sem fram kemur í þessari grein er Ísland í hnotskurð. Guð blessi Ísland sagði ég bara eftir þann lestur.
Leiðari Moggans '' PENINGAR ANNARRA'' þar hitti hann naglann á höfuðið, hér þarf ríkisstjórnin og skilanefndar bankanna að vanda vinnu sína og hafa allt upp á borðinu. Margeir Pétursson sagði það svo rétt, bankar sem hefðu verið hér heima í viðskiptum áratugum saman og lánað fyrir gífurlegum umbótum og nú sætu þeir eftir með sárt ennið, við verðum að sinna þessum aðilum þar sem við þurfum á þeim að halda það er á hreinu.
Reykjavíkurbréfið er gott að vanda og margt sem þar kom fram er rétt og nú þarf þjóðin að hugsa sinn gang vel og fara í naflaskoðun. Þjóðinn hefur krafist uppgjörs og að nýtt fólk verði við stjórn þjóðarskútunnar, og þá spyr maður sig hvað hefur breyst jú það er búið að taka til í Framsóknarflokknum eins er búið að taka til í Sjálfstæðisflokknum búið að skipta um stjórn í Seðlabankanum. Hvað er þá eftir jú bæði Samfylkingin og VG eru enn að hjakka í sama farinu sama fólkið og eingin stefna jú fyrirgefðu HÖFT OG SKATTAHÆKKANIR er það sem okkur vantar núna?
Ekki vil ég gleyma að minnast á forsetann því í Mogganum í dag er grein eftir Bergsvein Guðmundsson '' EMBÆTTISFERILL FORSETA ÍSLANDS'' á blaðsíðu 48. Takk fyrir þessa grein Bergsveinn ef ég á að vera hreinskilinn þá brá mér dálítið því ég hélt að ég væri að verða galinn þar sem ég var með það á hreinu að ekki hafði ég sent neina grein til Moggans í vikunni. Hún er nákvæmlega það sem ég er búinn að vera hugsa í margar vikur.
En svona er Ísland í dag.
Heilbrigð skynsemi óskast.
Njótið dagsins.
Viðskipti og fjármál | Breytt 23.3.2009 kl. 14:23 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.3.2009 | 18:20
Verður að lyfta huliðshjálminum Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri
Ríkisskattstjóri talar mannamál í morgunblaðinu í dag, Laugardaginn 21.mars 2009, og það er athyglisvert að hann skuli taka Leynifélag Baugsmanna - Fjárfar ehf. - og svo hið falda eignarhald á Fréttablaðinu á sinum tíma sem dæmi um hversu langt menn ganga að fela eignarhald og villa um fyrir skattyfirvöldum og öðrum yfirvöldum..
.ég hvet ALLA til að skoða myndband nr.2 hérna sem fjallar einmitt um leynifélagið Fjárfar ehf. sem verður að teljast eitt best heppnaðasta og mest undirbúna svindl íslenskrar viðskiptasögu !!!
En leyfum æðsta embættismanni íslenska skattkerfisins að tala en hann segir m.a.:
"Þegar manni blöskrar verður leiðari eins og þessi til. Maður telur sig knúinn til þess að tala tæpitungulaust um þau öfl sem skattkerfið á við að etja.
Ég verð að viðurkenna að bæði mér og samstarfsmönnum mínum hjá Ríkisskattstjóra hefur þótt með ólíkindum hvað menn hafa verið að aðhafast samkvæmt því sem upplýst hefur verið undanfarið,« segir Skúli Eggert Þórðarson ríkisskattstjóri um harðorðan leiðara sem hann skrifaði ásamt Ingvari J. Rögnvaldssyni vararíkisskattstjóra í blaðið Tíund, sem gefið er út af embætti Ríkisskattstjóra.
Í leiðaranum er vitnað til þess að í fjölmiðlum sé því haldið fram að Íslands sjálftökumenn hafi leikið lausum hala og sagt að ef ekki náist tekjur og eignir úr skattaskjólum ásamt því að eignir bankanna standi undir skuldbindingum muni almenningur sem enga ábyrgð bar á bankahruninu þurfa að greiða aukna skatta vegna afdrifaríkra meðferða fjármuna nokkurra tuga manna sem höfðu yfir sér huliðshjálm bankaleyndar og skattaskjóla.
Græðgi þessara manna hefur eyðileggi orðstír heillar þjóðar.
Heilbrigð skynsemi óskast.
Njótið dagsins.
20.3.2009 | 16:22
Nýir tímar - aukin samkeppni
>> FÍS fagnar því að samkeppnissjónarmið verði sett á oddinn og að gömul viðskiptaveldi verðir ekki endurreist í óbreyttri mynd
Heilbrigð skynsemi óskast.
Njótið dagsins.
20.3.2009 | 07:53
Loksins koma jákvæðar fréttir
![]() |
Gætu orðið til 300 störf |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Þetta eru ótrúlegar fréttir, hér er verið að tala um 2000 milljónir, hvað var aftur verið að tala um að eigi að spara í heilbrigðismálum þjóðarinna?
Á hvaða sér samning voru þessir menn hjá Kaupþing banka.
Hér er frétt sem birt var á visir.is
Kaupþing þarf að öllum líkindum að afskrifa tæplega tveggja milljarða króna lán til félags í eigu lykilstarfsmanna Baugs. Sama félag lánaði lykilstarfsmönnunum þrjá og hálfan milljarð króna. BGE er eignarhaldsfélag í eigu eigenda og lykilstarfsmanna Baugs.
Stærstu hluthafarnir eru Jón Ásgeir Jóhannesson fyrrverandi starfandi stjórnarformaður Baugs, Gunnar Sigurðsson forstjóri, Stefán Hilmarsson fjármálastjóri og Skarphéðinn Berg Steinarsson, fyrrverandi
BGE á engar aðrar eignir til að standa straum af láninu og Kaupþing neyðist því að öllum líkindum til að afskrifa það. Fréttastofa hefur ekki upplýsingar um hvort að lánið liggi í gamla eða nýja Kaupþingi.
Heilbrigð skynsemi óskast.
Góða kvöldstund.
17.3.2009 | 15:56
Sigurður Einarsson staðfestir fréttir af Kaupþingi
Trúnaðar- gögnum stolið frá Kaupþingi og beitt af óprúttnum aðilum er maðurinn ekki í standi, allt bankakerfið á Íslandi hrundi!!!!
Getur ekki einhver sagt honum það.
En fyrst hann segir að þetta sé byggt á trúnaðargögnum sem hann telur að leynd eigi að ríkja um þá jafngilda það staðfestingu hans á að þetta sé allt satt og rétt þær fréttir sem fluttar voru á mbl !Stórar lánveitingar Kaupþings til bresk-íranska viðskiptamannsins Roberts Tchenguiz brutu hugsanlega gegn reglum um stórar áhættuskuldbindingar fjármálafyrirtækja. 30. júní 2008 voru útistandandi lán Kaupþings til Roberts Tchenguiz og félaga í hans eigu 230,2 milljarðar króna. Eiginfjárgrunnur bankans 30. júní var 582,9 milljarðar króna.
frétt af mbl.isSigurður Einarsson var sæmdur heiðursmerki hinnar íslenzku fálkaorðu, riddarakrossi árið 2007.Ári seinna eða 2008 fékk Jón Ásgeir Jóhannesson útflutningsverðlaun forseta Íslands. Maður spyr sig fyrir hvaða útflutning? Útflutninga á peningum úr landi? - eða fyrir að flytja sjálfan forsetann út í einkaþotu sinni?Þetta sýnir að forsetinn er vanhæfur og á að víkja. Af hverju er potta og pönnuliðið ekki að mótmæla fyrir utan Bessastaði og krefjast þess að forseta Íslands hurðaopnara fjárglæframanna og klappstýra auðdónanna, Ólafur Ragnar Grímsson axli ábyrgð og víki?
Það verður aldrei sátt í samfélaginu fyrr en forsetinn axlar sína ábyrgð á öllu sukkinu og víkur úr embætti.
Græðgi þessara manna hefur eyðileggi orðstír heillar þjóðar.
Heilbrigð skynsemi óskast.
Njótið dagsins.
17.3.2009 | 00:28
Logos og Baugur taka 2.
Orðið á götunni er að tengsl lögmannsstofunnar Logos við Baug og önnur félög Jóns Ásgeirs Jóhannessonar séu nánari en fram hefur komið. Þessi tengsl vekja spurningar um hæfi starfsmanns á lögmannsstofunni til að fjalla á óhlutdrægan hátt um þá gífurlegu fjárhagslegu hagsmuni sem í húfi eru þegar Baugur er tekinn til skipta.
Eftirfarandi má lesa (enn) á heimasíðu Baugs Group: http://www.baugurgroup.is/Um-Baug-Group/Starfsfolk
Kristín Þorsteinsdóttir starfar sem verkefnastjóri á Kynningarsviði Baugs. Kristín hóf starf hjá Baugi í október 2007 og sér um verkefni tengd samfélagslegri ábyrgð Baugs. Kristín hefur undanfarið starfað sem fjölmiðlafulltrúi Baugs Group.
Kristín Þorsteinsdóttir er eiginkona Skafta Jónssonar. Skafti Jónsson er bróðir Gests Jónssonar .. en Gestur Jónsson er lögmaður Jóns Ásgeirs. Skafti Jónsson og kona hans eiga son, hann heitir Jón Skaftason.
http://www.logos.is/Index/Starfsfolk/Sjananar//115
Hjá LOGOS starfar Jón Skaftason, laganemi sbr. eftirfarandi uppl. af heimasíðu LOGOS, en ekki skal sagt neitt um það hvursu algent það er að laganemar séu ráðnir hjá stofum eins og LOGOS.
(faðir Skafta og Gests var Jón Skaftason fyrv. sýslum.).
Heilbrigð skynsemi óskast.
Njótið dagsins.