25.5.2009 | 11:32
Ársfundur Lífeyrissjóðs Verslunarmanna.
Kæru sjóðsfélagar,
Ársfundur Lífeyrissjóðs Verslunarmanna verður haldin á Grand Hótel kl.18:15 í kvöld 25 maí.
Þetta er líklega einn mikilvægasti fundur lífeyrissjóðsins til þessa og hvet ég alla sjóðsfélaga að mæta enda gríðarlegir hagsmunir í húfi.Lagt verður fram nokkur mál á fundinum og bið um stuðning ykkar enda ársfundurinn æðsta vald sjóðsins þar sem félagsmenn geta krafist svara. Helstu mál: 1. Að sett verði launaþak á æðstu stjórnendur sjóðsins.2. Að bækur sjóðsins verði opnaðar og skuldabréfaeign sjóðsins verði sundurliðuð og gerð opinber. 3. Að laggður verði fram eignalista yfir öll hlutabréf, skuldabréf og aðrar eignir LIVE þann 1. janúar 2008, 3. október 2008 og 1. janúar 2009 (á við bæði innlendar sem og erlendar fjárfestingar). Jafnframt yfirlit yfir þóknanir við eignatilfærslur.4. Að fundurinn samþykki ekki ársreikning fyrr en upplýsingar um í 2. lið liggur fyrir.5. Að óháðir aðilar (erlendir) sem fulltrúar sjóðsfélaga utan stjórnar tilnefna til að endurskoða bækur sjóðsins.Sýnum Samstöðu og mætum öll.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.