14.5.2009 | 19:46
The best way to rob an insurance company is to own one.
Veðsettu bótasjóðinn - vantar 10 milljarða til að tryggja Sjóvá
Heimildir Morgunblaðsins herma að slæma stöðu Sjóvár megi rekja til þess að fyrrverandi eigandi félagsins, Milestone veðsettu bótasjóðinn.
Minnst 10 milljarða króna vantar í eignasafn Sjóvár svo að eiginfjárhlutfall félagsins teljist jákvætt, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag.
FL Group eignast 84% hlutafjár í TM
Miklar breytingar verða væntanlega á stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf., TM, á hluthafafundi sem haldinn verður síðdegis í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, einn eigenda Ovalla Trading, stærsta hluthafa TM, verða næsti stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar í stað Tryggva Jónssonar, aðstoðarforstjóra Baugs,
Aðrir sem munu gefa kost á sér í stjórn TM á hluthafafundinum í dag eru: Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sem kemur inn sem fulltrúi Fjárfestingarfélagsins Straums, og Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugsog einn eigenda Ovalla Trading.
Ovalla Trading er í eigu Hreins Loftssonar og Fjárfestingarfélagsins Gaums, sem er í eigu Jóhannesar Jónssonar og barna hans, Kristínar og Jóns Ásgeirs.Ovalla er með rúmlega 18% hlut í TM sem félagið keypti af Kaupþingi nýverið á 2,2 milljarða króna.
Nú verður gaman að sjá hvernig hinir bótasjóðirnir standa.
Vís = Exista
TM = Fl group stoðir
Sjóvá = milstone
vörður = baugur breyttist svo í landsbankann
Nýtt Ísland og heilbrigð skynsemi óskast.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
The best way to rob a nation is to own one!
Þorsteinn Helgi Steinarsson, 15.5.2009 kl. 10:42
"Minnst 10 milljarða króna vantar í eignasafn Sjóvár svo að eiginfjárhlutfall félagsins teljist jákvætt,"
Á mannamáli = búið að tæma bótasjóð Sjóvá. Er einhver ástæða til að ætla að hinir bótasjóðirnir hafi sloppið ?
Sigrún Unnsteimsdóttir (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 14:39
Hvernig í ósköpunum getur verið löglegt að veðsetja bótasjóð tryggingafélags? Stríðir það ekki gegn samfélagslegum tilgangi þess að vera með tryggingar yfirleitt?
Ef að tryggingafélag er ekki skyldugt til að eiga óveðsettann sjóð til að mæta þeim áföllum sem að tryggingatakar geta orðið fyrir, þá er allt eins hægt að segja fólki bara að leggja til hliðar til að eiga fyrir þessum áföllum sjálft; dreifing áhættu og tryggð geta til að borga tjón er forsenda þess að reka slíkt tryggingakerfi til að byrja með...
Einar Þór (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 17:31
Þurfum að reka á eftir færeyjingunum með að koma með tryggingarfélag hingað. Ég myndi skipta yfir til þeirra þó þeir væru dýrari. Eina vopnið sem við höfum til að losna undan mafíunni er að svelta hana. Stjórnvöld munu aldrei ráðast gegn henni.
Viðar Ingvason (IP-tala skráð) 15.5.2009 kl. 17:52
Hva og bara í fyrsta skipti sem engin IP tala frá glæpónunum fretar neitt á Jón !!!.
Segir meira en margt.
Ómar Ingi, 15.5.2009 kl. 19:51
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.