11.4.2009 | 12:43
Lítum einnig á þau fyrirtæki sem eru skrásett á Túngötu 6, 101 Reykjavík sem jafnframt eru höfuðstöðvar Baugs Group á Íslandi.
Meðfylgjandi er yfirlit styrkja til Samfylkingarinnar frá lögaðilum árið 2006 sem voru hærri en kr. 500.000,-
Baugur Group hf. 3.000.000
FL Group hf. 3.000.000
Glitnir 3.500.000
Teymi ehf. 1.500.000
Eftir 2006 voru sett lög að ekki mætti taka við hærri styrk en 300.000,- frá fyrirtækjum
En ef við lítum á öll þau félög sem voru skráð á Túngötu 6, en þar er til húsa höfuðstöðvar Baugs Group á Íslandi þá kemur þetta fram.
Maður veltur því fyrir sér hafa einhver að þessum fyrirtækjum gefið styrk til stjórnmálaflokka og ef svo hversu hár var hann?
Baugs Group á Íslandi 2007....
Teymi
365 miðlar
Hagar hf.
Stoðir Invest
Styrkur invest
Gaumur
471099-2289 3650 ehf
561006-0750 A-Holding ehf
440507-2200 Al-Coda ehf
520207-0230 Arctic Holding ehf
551299-2019 Arctic Investment ehf
520607-0990 Arena Holding
490206-0940 Arpeggio ehf
480798-2289 Baugur Group hf
640406-0540 BG Aviation ehf
631007-1040 BG Bondholders ehf
680201-2260 BG Equity 1 ehf
520603-4330 BG Holding ehf
631007-1550 BG Newco 2 ehf
641007-0800 BG Newco 4 ehf
480408-0390 BG Newco 5 ehf
560908-0910 BG Newco 6 ehf
590907-0810 BG Ventures ehf
661103-3450 BGE Eignarhaldsfélag ehf
630407-0440 BJF ehf
690405-0160 DBH Holding ehf
481007-0890 Dial Square Holdings
660307-1920 F-Capital ehf
630600-2270 Hrafnabjörg ehf
600906-0460 Hugverkasjóður Íslands ehf
680607-1410 Hvítárbakkablómi ehf
450697-2229 Ís-rokk ehf
630407-0520 J.Ól ehf
500107-1620 Jötunn Holding ehf
420597-3639 Maccus ehf
621104-2760 M-Holding ehf
700307-1820 Milton ehf
421106-1180 M-Invest ehf
470207-1830 Nelson ehf
520698-2729 Norðurljós hf
530707-1640 Popplín ehf
590907-1890 Retail solutions ehf
430507-1090 Skuggar ehf
550507-2420 Sólin skín ehf
551007-0300 Sports Investments ehf
501201-2940 STP Toys
610993-3469 Styrkur Invest ehf
690506-2380 Unity Investments ehf
590207-0550 Unity One ehf
48 X 300.000 = 14.400.000.00
Spyr sá sem ekki veit.
Græðgi þessara manna hefur eyðilaggt orðstír heillar þjóðar.
Heilbrigð skynsemi óskast
Gleðilega páska.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt 12.4.2009 kl. 11:01 | Facebook
Athugasemdir
Það er bara ekki nóg að birta bókhald flokkanna eitt eða tvö ár aftur í tímann. Fara verður aftur um sex ár hið minnsta. Einnig ætti forseti lýðveldisins að birta kosningabókhald sitt frá upphafi. Það er deginum ljósara að allir hafa þegið eitthvað af þessum mönnum og öðrum. Flokkarnir eru allir meira eða minna spilltir ef það að þyggja fjárframlög er mælikvarði á spillingu. Góður punktur þetta með eignadreifinguna þetta auðveldar náttúrulega mönnum að fela peningagjafir. Þó er einn flokkur sem sker sig úr og það er VG, reyndar dettur engum heilvita fjármálamanni í hug að fóðra þann óskapnað skattheimsku og draumórapjatts. Jú þeir fengu milljón hjá einhverju tryggingafélagi.Var þapð að tryggja sig? Þessi annars ágæti kosningaskrípaleikur Hefur hinsvegar geysilega alvarlegar afleiðingar fyrir fólkið í landinu. Á meðan þetta þetta sandkassaþras um hver fékk hvað og hver sé minnst skítugur stefna heimilin og einstaklingarnir hraðbyri í glötun skuldafens, atvinnuleysis og kaupmáttarþrots. Farið að velta fyrir ykkur lausnum og leggið frá ykkur hengingarólarnar, tjöruna og fiðrið. Uppgjörið getur beðið.
kallpungur, 11.4.2009 kl. 13:38
Ég var að ræða þessi mál, og orðaði þetta einmitt svona: Þeir hafa eyðilagt orðstír heillar þjóðar með græðgi sinni.
landráðamenn!!
ThoR-E, 11.4.2009 kl. 19:50
Tek undir með AceR, Ekkert annað en Landráðamenn,mætti ég frekar biðja um annan Jörund hundadagakonung,en á þessu ári eru liðin 200,ár frá því að hann var hér örstutt í hásæti.
Númi (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 21:19
Svona verða kjaftasögurnar til. Fólk gefur sér eittihvað, næsti tekur það upp, segist hafa heyrt það og sá þriðji staðfestir það.
Ingibjörg Friðriksdóttir, 11.4.2009 kl. 21:43
Kjaftasögur??
Þetta eru ekki kjaftasögur Ingibjörg mín, þetta eru staðreyndir.
ThoR-E, 11.4.2009 kl. 21:44
Þú hefur semsagt engar athugasemdir við 30 mill. styrk FL til StjálfstæðisFLokksins.
Bobbi (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 22:16
48 X 300.000 = 14,4000.000
Spyr sá sem ekki veit.
Ég á við þegga AceR. Svona vangaveltur finnst mér ósmekklegar, sérstaklega þegar verið er að gefa því skóna að einn stjórnmálaflokkur og sá eini sem nefndur er í pistlinum hafi fengið 14,4 millur frá fyrirtækjunum sem nefnd eru.
Þetta er háttur kjaftasksins.
Ingibjörg Friðrikdóttir (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 22:20
Hvernig finnst þér nýji BaugsFLokkurinn (sjáLfstæðisFLokkurinn) koma út úr þessu rosalega mútuhneyksli ?
HG (IP-tala skráð) 11.4.2009 kl. 22:47
Þetta lítur síðan enn verr út því þessi sömu fyrirtæki áttu þátt í því að efnahagur Íslands hrundi. Og að stærstu stjórnmálaflokkarnir hafi fengið háar greiðslur frá þessum sömu fyrirtækjum ... að það er flokkunum til skammar.
Kannski í lagi að taka fram að Frjálslyndiflokkurinn tók ekki við neinum óeðlilegum styrkjum frá útrásarvíkingunum. Enda bókhaldið opið á heimasíðu flokksins og sundurliðað.
ThoR-E, 11.4.2009 kl. 22:55
Þetta er nákvæmlega málið Jón, það sér engin athugavert við þessa styrki. Menn eru að reyna með öllum mögulegu leiðum að koma einum flokki fyrir kattarnef, svo gleymast aðrir flokkar í múgæsingnum.
Stefán Óli Sæbjörnsson, 12.4.2009 kl. 00:10
Þetta samsærisraus í þér drengur er algjörlega komið í nokkra hringi.
Þú hefur sjálfur verið á kostaður af mogganum og FLokknum. Mogginn er kostaður af ríkisbanka og FLokkurinn af Baugi.
Craig (IP-tala skráð) 12.4.2009 kl. 09:20
Fólk ætti að lesa doktorsritgerð Gunnars Thoroddsen en hún heitir einmitt Fjölmæli. Þetta myndi væntanlega flokkast undir fjölmæli og er refsivert samkvæmt hegningarlögum.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 12.4.2009 kl. 09:43
Það er frekar undarlegt að sjá þessas athugasemd '' SAMSÆRISRAUS'' og ''FJÖLMÆLI'' ekki vissi ég Þorsteinn að á Íslandi væri bannað að velta upp spurningum og væri gott ef þú gæti útskýrt mál þitt betur.
Þar sem Craig er ekki að skrifa undir sínu rétta nafni þá er hans athugasemd ekki svaravert.
Kv Jón Gerald.
Jón Gerald Sullenberger, 12.4.2009 kl. 11:01
Hvað er að því að velta hlutunum fyrir sér segi ég nú bara. Er það ekki einmitt tilgangur bloggs; að viðra hugleiðingar og skoðanir. Þetta kjaftæði í kringum Sjálfstæðisflokkinn með þessa háu styrki er ekkert annað en fjaðrafok vegna kosninga því flestir flokkar hafa jú verið að þiggja styrki frá fyrirtækjum. Ég tek það fram að ég mun ekki kjósa Sjálfstæðisflokkinn en hví er hann verri fyrir að hafa verið duglegri að afla sér fé með frjálsum framlögum heldur en hinir flokkarnir? Ekki sé ég bein línuleg tengsl á milli þess að styrkir hafi verið háir og að flokkurinn sé "verri" heldur en hinir flokkarnir.
Soffía, 12.4.2009 kl. 11:14
Ef hægt er að byggja upp heilt fjölmiðlaveldi til að tala máli sínu, þá er frekar ódýrt að halda út einum Stjórnmálaflokki í leiðinni. Sérlega heppilegt þegar þarfir mætast svona á miðri leið...einn aðili vill halda uppi ímynd sinni og annar er á höttunum eftir Silfurpeningum. Hjónabönd sem þessi eru svo falleg...baðir fá eitthvað. Auðvitað er það leiðinlegt að þetta hafi kostað eitt stykki samfélag, en færa þarf fórnir þegar hagsmunir fárra ganga fyrir.
Haraldur Baldursson, 12.4.2009 kl. 11:30
Þú verður að lesa þessa doktorsritgerð eftir fv. forsætisráðherra og virtan lagaprófessor hún er 470 bls. Það er nauðsynlegt fyrir þá sem eru mikið í málaferlum.
Í stjórnarskránni okkar segir:
Allir eru frjálsir skoðana sinna og sannfæringar.
Hver maður á rétt á að láta í ljós hugsanir sínar, en ábyrgjast verður hann þær fyrir dómi.
Ég hef væntanlega sama rétt og þú, Jón, til að koma með athugasemdir eða hvað?
Í umfjöllun minni sagði ég ;væntanlega, það er ekki fullyrðing. Ég sagði ekki að það væri bannað að velta upp spurningum, það eru þín orð.
Ég var aðeins að velta vöngum yfir þessari færslu þinni og vitnaði í höfuðrit íslendinga varðandi fjölmæli. Ég var nú að eins að taka þátt í almennri umræðu hér á blogginu. Það var nú allt og sumt. Þú þarft ekki að stökkva upp á nef þér yfir því.
Þorsteinn H. Gunnarsson, 12.4.2009 kl. 12:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.