30.3.2009 | 13:46
Stefnumál stjórnarflokka ríma saman sem eru eingar.
Ég hef verið að fylgjast með fréttum af landsfundi stjórnmálaflokkanna og hef ég verið að leita af því hvernig þeir og reyndar allir þessir flokkar ætla að koma íslensku þjóðini út úr þeim ógöngum sem hún er komin í. Það eina sem komið hefur fram er að á heildina litið eru málefni flokkana tveggja Samfylkingin og VG þær sömu afla tekna með sköttum. Báðir flokkar boða aðgerðir á borð við frystingu lána og aukið tillit til skuldara við innheimtuaðgerðir hins opinbera.
Nú spyr maður sig hvernig ætla stjórnmálaflokkarnir að borga skuldir Íslendinga? fyrir utan að hækka skatta fólksins í landinu. Ekki vil ég trúa því með aðild að Evrópusambandinu (ESB) séu hagsmunir Íslendinga best borgið eins og Samfylkingarmenn sögðu í gær. Það þarf að borga skuldir ekki fáum við þær feldar niður ef við göngum í ESB. Er ekki málið að einblína frekar á hvað hægt sé að gera hér heima til að efla útflutning og fá tekur inn í landið svo hægt sé að borga þessar erlendu skuldir okkar.
Við sendum stærsta hluta fiskafla okkar út óunnin og látum Breta og Dani vinna hann áfram í stað þess að vinna hann hér heima og senda út með mun meiri tekjum.
Við eigum hér stór álver sem senda út fleiri þúsund tonn af áli það er síðan notað til að búa til allskyns vörur bæði í bíla og húsnæðis framleiðslu. Af hverju getum við ekki nýtt okkur þetta ál og sett hér upp framleiðslufyrirtæki og skapað bæði vinnu og tekur fyrir landið okkar í stað þess að senda þetta ál allt út í stórum klumpum og látið aðrar þjóðir hafa þær tekjur sem ella gætu skapast hér heima.
Svo er það ferðaþjónustan hún er óendanleg þegar maður talar við útlendinga þá verða þeir eitt stórt spurningarmerki, við eigum eitt það fallegasta land, framleiðum hér frábært hráefni og landið er fullt að fagfólki í þessum geira. Ég tala nú ekki um Detox heilsumeðferð að sem hér gæti Ísland orðið heilsuland fyrir ríka og fræga í boði Jónínu Ben.
Ekki má gleima öllu því fagfólki sem til er í hönnun og list af hverju þarf að framleiða allar þær vörur sem þetta fólk er að hanna í Kína en ekki hér heima. Tökum Finna eða Dani til fyrirmyndar og eflum íslenska framleiðslu og hættum að kaupa hana frá Kína.
Fjölmiðlar í dag eru fullir að því sem Davíð Oddsson sagði en ekki þá umræðu sem vantaði á landsfund stóru stjórnmálaflokkana en hún er HVERNIG ÆTLAR ÍSLENSKA ÞJÓÐIN AÐ BORGA ERLENDAR SKULDIR SÝNAR.
Heilbrigð skynsemi óskast.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Góðir punktar hjá þér, það er eins og það vanti allt frumkvæði til að fullvinna þá framleiðslu sem við höfum unnið með. Það má helst ekki minnast á álið, þá verða kommarnir vitlausir þó að álið sé í raun umhverfisvænt þegar að grannt er skoðað. En með því að nota ál til létta farartæki stuðlar það að minni eyðslu og um leið minni útblæstri svokallaðra gróðurhúsategunda. Það er svo ótal margt hægt að gera með álið. Reyndar held ég að það sé byrjar að framleiða rafmagnskapla í álverinu á Reyðarfirði. Mér dettur einnig í hug búsáhaldabyltingin, en ég er nærri alveg viss að megnið af pottunum og pönnunum hafi verið framleitt úr áli. Ég hef heyrt að þú sem athafnamaður sért að stofna nýjar lágvöruverslanir, af hverju startarðu ekki einhverri fullvinnslu á vörum úr áli eða öðru, það er af mörgu að taka.
skora á þig.
kveðja Rafn.
Rafn Haraldur Sigurðsson (IP-tala skráð) 30.3.2009 kl. 20:18
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.