HVENÆR VAKNAR ÞESSI ÞJÓÐ ???

Þennan póst fékk ég sendan til mín í morgun og þar sem allt í honum er er svo satt og rétt að ég ætla að taka méð það bessaleifi að birta hann hér fyrir ykkur hin að lesa. 

Þetta er sorglegur sannleikur sem hér er ritað. 

Sæl Jón, 

Ég var að hlusta á þig á Rás 2 og hjó eftir því að þú sást Bónusfánann yfir Alþingi íslendinga sem tákn um stöðu Íslands. Ég er algerlega sammála þér. Þessi atburður er lýsandi dæmi hvernig staðan hefur verið til langs tíma. Það sem átti að vera mótmæli breyttist í staðreynd. Þetta var afar táknrænt, bleiki grísinn á Bessastöðum blakti yfir táknmynd sjálfsstæðis Íslands. Það er skelfilegt að almenningur sér ekki hversu alvarlegt er þegar spillt viðskiptaveldi hefur hreðjatak á íslensku þjóðinni með því að hafa ÓRG í vasanum og þar með stjórn á störfum Alþingis. Það er ekki langt síðan almenningur trúði því statt og stöðugt hversu við værum æðisleg og klár og útrásarvíkingar, bankaeigendur ásamt bankastjórnendum væri heiðarlegt og gott fólk. Þvílíkt djöfuls bull. Spilling og óheiðarleiki stjórnaði og réð öllu. Eftir situr venjulegt fólk með sárt ennið, atvinnulaust og er að tapa öllu. Á meðan keyra sumir á Bugatti Veyrone og Maclaren bílunum sínum, sigla á snekkjunni sinni eða skjótast á svörtu einkaþotunni sinni til Manhattan. Leikföng sem borguð eru af trúgjörnum íslendingum með lífssparnaði sínum.

Allt þetta blessaði svo Forseti Íslands. Jafnvel hörðustu VG-menn eru mjög ósáttir við gjörðir hans á "góðæristímanum" og niður-á-við-snobbi gagnvart almenningi nú eftir hrunið og yfirlýsingagleði hans og bulli sem skaðar Ísland enn meira, er þó meira en nóg fyrir. Hann er trausti rúinn, almenningur sér í gegnum hann. Það er staðreynd að hann þáði það sem að honum var rétt af þessum mönnum sem settu Ísland á hnén og heimilin á vonarvöl.

Æ sér gjöf til gjalda.  

Á sama tíma nýttu Baugsmenn sér til hins ýtrasta 365 miðlana til skoðanamyndunnar almennings og að heilaþvo fólk. Góður maður sagði við mig snemma árs 2007 að búið væri að "bjánavæða" þjóðina, að 70% íslendinga væru bjánar. Þessi hópur léti teyma sig hvert sem er, gagnrýnislaust, algerlega heilaþveginn, stjórnað af örfáum mönnum sem í krafti illa fenginna peninga réðu yfir fjölmiðlum sem blygðunarlaust væri notaðir til skoðunarmyndunar og glansmyndargerðar. 

Ef einhver stæði upp og mótmælti væri hann umsvifalaust keyrður niður í svaðið af fjölmiðlunum, mannorðslaus og aumkunarverður af öfundssýki. 

Þetta reyndist rétt, því miður. 

 

HVENÆR VAKNAR ÞESSI ÞJÓÐ ? 

Hafið góðann dag.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Davíð Löve.

Og Baugur átti náttúrulega Kaupþing, Landsbankann og allar aðrar þjófastofnanir landsins, er það ekki? Þið hljómið eins og D.O. Er alls ekki að mæla Jóni Á. og co til bóta, en þessi Baugs samnefnari er orðinn þreyttur.

Davíð Löve., 12.3.2009 kl. 13:05

2 Smámynd: Jón H B

Já þetta er nákvæmlega málið.  Baugur var með margann Kaupþingsstjórann í vasanum sem er að koma í ljós.  Og Davíð Löve ætti að taka leppana frá augunum til að sjá þetta í nýju ljósi.

Jón H B, 12.3.2009 kl. 13:10

3 identicon

Já, Jón Ásgeir hefur greinilega spunnið marga og flókna viðskiptavefi og virðist hafa haft bankastjóra/stjórnir í vasanum og líklega hafa þeir svo haft Jónas Friðrik fyrrverandi forstjóra fjármálaeftirlitsins í vasanum. Það þarf að rannsaka ofan í kjölinn hvernig Fjármálaeftirlitið undir stjórn JF virtist vera blint og horfa fram hjá öllum rotnum og vafasömum fjármálagjörningum sem útrásarvíkingarnir ( stórþjófarnir ) frömdu.  

Stefán (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 13:48

4 Smámynd: Haraldur Baldursson

Samviska og sál þeirra fréttamanna sem undir Fjórða-Valdinu ehf. (365) starfa og störfuðu verður bara endurreist með því að þeir taki til hendinni og rannsaki eigenda samsteypunar.

Haraldur Baldursson, 12.3.2009 kl. 14:06

5 identicon

Hvernig er þá hægt að útskýra rúv. Ég er samt sammála því að fjölmiðlar voru og eru litaðir af eigendum sínum, en málið er að við hefðum átt að geta treyst rúv, en þar hafa sjálfstæðismenn ráðið síðustu 16 ár, er það ekki.

Kristín (IP-tala skráð) 12.3.2009 kl. 18:35

6 Smámynd: Haraldur Baldursson

Það er skemmtileg samantekt um vinstri slagsíðu fjölmiðlafólks á síðu Sigríðar Á. Andersen.

Haraldur Baldursson, 12.3.2009 kl. 20:39

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband