4.2.2009 | 10:22
Baugur í greiðslustöðvun
'' Baugur Group hf. og nokkur dótturfélaga þess, þ.á m. BG Holding ehf., fóru í morgun fram á það við Héraðsdóm Reykjavíkur að félögunum yrði veitt heimild til greiðslustöðvunar. Þetta er gert til að vernda eignir fyrirtækjanna sem og allra lánardrottna þeirra'' Getur verið að þeir séu búnir að koma því þannig fyrir að Hagar sem eiga meðal annars Bonus og Hagkaup þurfi ekki að standa skil á sínum lánum. Er það huggsanlegt að Gaumur sem er í eigu þessara fjölskyldu sé búinn a koma þessum eignum undan með einhverjum fimleikum eða sjónhverfingu að hætti Jón Ásgeirs og Tryggva Jónssonar. Það er eins gott fyrir Landsbankann að skoða þessi mál vel þar sem þeim er trúað til alls.
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Samkvæmt Jóni Ásgeir er þetta allt Davíð að kenna. Væri Davíð jafn valdamikill og Fjórða Valdið ehf. reynir að mála hann upp....hefði hann þá nokkurn tíma átt í nokkrum vandræðum með að sökkva Baug fyrir löngu síðan ? Grýlumynd Fjóðra Valdsins ehf. á Davíð er stærsta lygasaga lýðveldissögunar.
Haraldur Baldursson, 4.2.2009 kl. 11:15
Viðskiptaráðuneytið hefur verið einokað af krötum [new liberalism] til Borga og sveita [Framsóknar elítið] síðustu áratugina. R-listinn var líka undir þeirra stjórn. Seðlabankinn ber að fylgja stefnu stjónvalda á hverjum tíma og malda í móinn ef stöðugleika er ógnað.
Davíð koma inn í seðlabankann undir það síðasta og þó varð allt vitlaust hjá krötum. Ef þetta er ekki hluti af markaðssetningu [áróðurherferð] þá ég ekki hvað það er. Vild Davíð kannski ekki framfylgja ESB jafnaðarmarkmiðunum.
Júlíus Björnsson, 4.2.2009 kl. 11:29
Mikið er ég feginn að það séu bara tveir einstaklingar á Ísland með hið stórhættulega og lítt smitandi "BAUGS-SYNDROM". Þú, Jón Gerald og Jónína Ben.
Dexter Morgan, 4.2.2009 kl. 13:31
Dexter! Hvar hefur alið manninn upp á síðkastið?
Þú og J Á Baugur eruð nú ekki svo heppnir að Jónína og JGS sé ein um alvarlegt vantraust á öllu bralli Baugs. Lestu bara blogg við frétt í mbl dagsins um greiðslustöðvunarbeiðnina -- OG fleira - og fleira!
Hlédís, 4.2.2009 kl. 16:12
Hvort 'skrattinn hittir ömmu sína' þar sem DO og JÁ-Baugur rákust á - er allt annað mál!
Hlédís, 4.2.2009 kl. 16:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.