14.1.2009 | 16:45
hverju eru þessir menn að ljúga til um þetta hjá Landsbankanum?
Það gengur ekki lengur að opinberir starfsmenn ljúgi að þjóðinni; Atli Atlason framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankanns og fylgisveinn Sigurjóns Þ Árnarsonar úr Búnaðarbankanum sagði þetta í mbl. 7. nóv. Sl.; almennt væru starfsmenn sem hefðu hlotið refsidóm ekki ráðnir til bankans en hvert tilvik væri metið fyrir sig Aldrei í yfir 120 ára sögu bankans hefur maður með refsidóm verið ráðinn og hvað þá endurráðin á sama tíma og yfir 100 öðrum er sagt upp.Hvers vegna er svona mikilvægt að endurráða Baugsleppinn sem aðeins hafði verið í störfum í tæpt ár á meðan mjög góðu starfsfólli með yfir 10 ára reynslu er miskunalaust sagt upp? Í fyrstu er hefur hann titilinn forstöðumaður og í skipuriti undir framkvædastjóra lögfræðisviðs, síðar fellur af einhverjum ástæðum forstöðumanns titillin niður. Gunnar Viðar framkvæmdastjóri lögfræðisviðs sagði í mbl. 7. nóv. sl.; Hann sagði aðspurður að Tryggvi Jónsson kæmi hvergi nálgat málum sem tengjast Baudi, 365, Jóni Ásgeiri Jóhennesssyni eða félögum sem tengjast honum. Deildin sem hann starfaði í sinnti ekki stærri málum og málefni Baugs teldust ótvírætt til stærri mála Þeir sem starfa í bankanum vita að deildin Sértæk útlán er með mörg stór mál á sinni könnu.
Af hverju eru þessir menn að ljúga til um þetta?
www.baugsmalid.isJon Gerald Sullenberger
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Facebook
Athugasemdir
Hvernig er það með Tryggva Jónsson. Er þetta ekki stóreignamaður ? Hvað er hann að dunda í Landsbankanum fyrir vasapeninga ?
Hafþór Kristjánsson (IP-tala skráð) 15.1.2009 kl. 17:52
Það er víða pottur brotinn í samfélaginu Jón Gerald.
Heimir Lárusson Fjeldsted, 15.1.2009 kl. 21:14
Góð spurning hvers vegna. Samtrygging kanski ein af leiðunum. Við búum í gjörspilltu þjóðfélagi því miður. Kanski var hann ráðinn til ð torvelda fyrir skoðunarmönnum? Veit ekki hvað á að halda.
Sigurbjörg, 17.1.2009 kl. 11:43
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.