17.11.2016 | 10:29
Opið bréf til Jóns Ásgeirs Jóhannessonar
Sæll Jón Ásgeir!
Las í fjölmiðlum nýlega vitnisburð þinn þess efnis að þú sért orðinn “bugaður maður” eftir öll þessi réttarhöld undanfarin ár, það er skiljanlegt það er erfitt að sitja undir ofsóknum yfirvalda árum saman eins og þú segir sjálfur frá. Eftir ákæru á hendur Hannesi Smárasyni og Aurum- réttarhöldin vakna margar nýjar spurningar sem ég tel rétt að almenningur fái svör við, saklausir menn hafa jú ekkert að fela Jón Ásgeir , ekki satt ?
1. Við vitnaleiðslur í Aurum-málinu, kom fram að bankinn Glitnir hafi sent þér persónulega banka upplýsingar m.a yfirlit yfir skuldir og lánveitingar Glitnir til Fons ehf. sem var í eigu Pálma Haraldssonar. Ekki varst þú hluthafi í Fons ehf á þessum tíma, sast ekki í stjórn félagsins, og ekki með prókuru fyrir Fons ehf. Því vaknar sú spurning hvernig í ósköpunum gast þú, Jón Ásgeir Jóhannesson fengið þessi lánagögn og yfirlit Fons ehf frá Glitni Banka?
Er þetta ekki brot á bankaleynd ? Voru fleiri félög sem þú “tengist ekki” og þú fékkst trúnaðarupplýsingar um frá Glitni ?
2. Í Aurum-réttarhöldunum framvísaði saksóknari tölvupósti sem þú sendir til forstjóra Baugs – Gunnari Sigurðssyni – þar sem þú segir orðrétt: “Á sínum tíma þá keypti PH skuldabréf af félagi sem Glitnir setti upp sem heitir “S” og var “HP” lofað að hann yrði ekki fyrir tjóni. Sem nú er staðreynd”. Hvað merkir “PH” í þessum pósti hjá þér ? Ert þú að visa þarna til Pálma Haraldssonar í Fons ? Hvað merkir “S” í þessum tölvupósti hjá þér? Pálmi sagði eiðsvarinn í réttarhöldunum að hann teldi þetta hafa verið Stím og játaði að hafa fjármagnað Stím ehf. með þúsunda milljóna krónu framlagi sem hann fékk auðvitað lánaða hjá Glitni – bankanum sem þú varst stærsti hluthafinn í. Þar sem þú sagðir – eiðsvarinn – í Stím-réttarhöldunum að þú hafir aldrei komið nálægt Stím og aldrei vitað neitt um þetta félag vekur þetta mikla furðu. Ég vona að þú sért ekki búinn að gleyma því að starfsmenn þínir í Glitni sitja núna í margra ára fangelsi vegna Stím viðskiptanna. Þessir tölvupóstar benda sterklega til þess að þú hafir ekki bara vitað um Stím ehf. heldur líka komið að undirbúningi og stofnun Stím ehf og m.a. fengið nánasta viðskiptafélaga þinn Pálma Haraldsson í Fons, til að koma að fjármögnun Stím strax frá fyrsta degi. Saksóknari m.a. framvísaði öðrum pósti sem Pálmi Haraldsson sendi á þig ásamt Lárusi Welding þar sem hann sagði það væri ósanngjarnt að hann tæki á sig “Stím ævintýrið”. Þvi spyr ég þig Jón Ásgeir: Komst þú að undirbúningi Stím ehf. ?
Lofaðir þú Pálma Haraldssyni, “skaðleysi”ef hann myndi samþykkja það að fjárfesta í Stím ehf?
3. Við rannsókn á málum sem snertu FL Gorup og Sterling-flugfélagið og hina frægu “3.000 milljón króna” millifærslu sem Hannes Smárason var ákærður fyrir, komu fram merkileg gögn sem enn og aftur tengja þig sterklega við Fons ehf. Þegar stjórn FL Group hótaði lögreglurannsókn vegna þessara millifærslu frá FL Group sem rataði inn á reikning Fons í Lux . í aðdraganda kaupa Fons á Sterling-flugfélaginu, leið ekki langur tími þar til þessar 3.000 milljónir voru komnar aftur inn á reikning FL Group. Við rannsókn málsins kom fram að Fons ehf. tók 3.000 milljón króna lán hjá Kaupþing Lúx til að endurgreiða FL Group þessar 3.000 milljónir og forðast þar með lögreglurannsókn. Aðeins 2 aðilar tóku á sig sjálfskuldarábyrgð vegna 3.000 milljón króna láns Kaupþings Lúx til Fons ehf. Annar var Hannes Smárason, þáverandi stjórnarformaður FL Group og hinn aðilinn sem tók á sig persónulega ábyrgð fyrir Fons ehf. VARST ÞÚ – Jón Ásgeir Jóhannesson. Sé haft í huga að þú Jón Ásgeir áttir ekki hlutabréf í Fons, sast ekki í stjórn Fons og varst ekki með prókuru fyrir Fons, af hverju ert þú að taka á þig persónulega ábyrgð upp á þúsundir milljónir króna fyrir félagið Fons ehf., sem þú hefur alla tíð sagst ekki tengjast á neinn máta ?
4. Eins og frægt er, þá “lánaði” Fons ehf. svo 3.000 milljónir króna til Pace félagsins í Panama enda hagnaður Fons ehf. þúsundir milljónir króna af Sterling viðskiptunum ykkur. Við rannsókn kom fram að engar tryggingar voru fyrir þessum 3.000 milljón króna láni til Pace. Fons ehf “afskrifaði” svo þetta lán í bókhaldi sínu um sólarhring eftir að lánið var veitt. Enginn vissi hver átti Pace félagið í Panama fyrr en Mosaick Fonseca lekinn gerðist og þá kom í ljós að Hannes Smárason var prókuruhafi Pace. Við rannsókn málsins kom svo fram að Pace millifærði 1.000 milljón krónur inn á reikning félaga þins Magnúsar Ármanns, en Magnús kom inn í stjórn FL Group þegar þú náðir völdum í FL Group ásamt hinum Baugsmönnunum, Skarphéðini Bergs og Þorsteini Jónssyni kenndan við Vífilfell. Fékkst þú eða félög þér tengdum, einhvern hluta af þessum þúsundum milljónum króna sem Pace fékk millifærða frá Fons ehf í Panama ? Fékkst þú eða félög þér tengdum eitthvað af þeim þúsundum milljónum sem Fons ehf. græddi á Sterling viðskiptunum með millifærslu Fons til Matthew Holding Luxemborgar skv ársreikningum Fons?
5. Að lokum langar mig að spyrja þig um einn mjög merkilegan tölvupóst Jón Ásgeir. Við rannsókn á Milestone málinu svokallaða kom fram tölvupóstur sem þú skrifaðir til forsvarsmanna Milestone árið 2005. Þar skrifar þú hver eru markmið ykkar með kaupum á hlutabréfum í bankanum. Þú skrifar orðrétt: “Verkefni Stjórna, ISB Og græða peninga, einfalt“. Þú náðir öllum völdum í bankanum 2007, eða um 2 árum eftir að þú sendir þennan póst. Þú réðst Lárus Welding til starfsins sem bankastjóra og útlán til þín og félaga þinna jukust um mörg hundruð present eins og kom fram í Rannsóknarskýrslu Alþingis. Þú fékkst síðan 1.000 milljón krónur lagðar inn á þinn perónulega reikning í Aurum-fléttunni og greiddir upp persónulegan yfirdrátt þinn hjá bankanum sem var uppá rúmlega 700 milljón krónur.
Saklausir menn hafa ekkert að fela, get ég treysti að þú upplýsir okkur hin um alla þessa “misskilninga” sem gögnin virðast sýna enda virðast yfirvöld lesa kolrangt úr þeim skv.framburði þinum.
Stendur þú enn við þá fullyrðingu að þú hafir EKKI stjórnað þessum banka og EKKI fengið neina óeðlilega fyrirgreiðslur frá bankanum ?
Virðingarfyllst,
Jón Gerald Sullenberger
Flokkur: Viðskipti og fjármál | Breytt s.d. kl. 14:44 | Facebook
Athugasemdir
Ja ljótt er ef satt er!!
Eyjólfur G Svavarsson, 18.11.2016 kl. 09:49
Ja ljótt er það, alla vegana. Megi sumum svelgjast á díet kókinu.
Halldór Egill Guðnason, 20.11.2016 kl. 06:19
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.