13.5.2009 | 19:50
Kafbátastarfsemin heldur áfram hér heima. Skilanefnd Spron selur eignir með tölvupósti til útvaldra !!!!!!!!!
Skilanefnd Spron hefur sent út tölvupóst til örfárra aðila þar sem hún óskar eftir tilboðum í hugbúnaðarfyrirtæki í sinni eigu. Ekkert formlegt söluferli fór fram. Er ekki komið nóg af þeirri kafbátastarfsemi sem hér hefur verið við lýði undanfarin ár.
Hvenær ætlum við að taka okkur saman í andlitinu og og hafa allt upp á borðinu.
Samfylkingin og VG hefði getað haft flokksráðs- og flokksstjórnarfundi sína fyrir opnum tjöldum, ég hélt að almenningur ætti að taka þátt í Nýja Íslandi það var allavega það sem þjóðin bað um ekki rétt?
Í staðinn var farin sú leið að flokksfólk, innvígt og innmúrað, fékk eitt aðgang og algjör leynd hvílir yfir umræðunum.
Þau hefðu getað gert það með því að hafa flokksráðs- og flokksstjórnarfundi sína fyrir opnum tjöldum og boðið fjölmiðlum inn og sent þetta út í beinni til þjóðarinnar hún á það skilið.
Stjórnvöld og opinberar stofnanir eins og ríkisbankarnir eigi að upplýsa þjóðina um gang mála eins búið var að lofa.
Nýtt Ísland og heilbrigð skynsemi óskast.