hverju eru þessir menn að ljúga til um þetta hjá Landsbankanum?

Það gengur ekki lengur að opinberir starfsmenn ljúgi að þjóðinni; Atli Atlason framkvæmdastjóri starfsmannasviðs Landsbankanns og fylgisveinn Sigurjóns Þ Árnarsonar úr Búnaðarbankanum sagði þetta í mbl. 7. nóv. Sl.; “almennt væru starfsmenn sem hefðu hlotið refsidóm ekki ráðnir til bankans en hvert tilvik væri metið fyrir sig”  Aldrei í yfir 120 ára sögu bankans hefur maður með refsidóm verið ráðinn og hvað þá endurráðin á sama tíma og yfir 100 öðrum er sagt upp.Hvers vegna er svona mikilvægt að endurráða Baugsleppinn sem aðeins hafði verið í störfum í tæpt ár á meðan mjög góðu starfsfólli með yfir 10 ára reynslu er miskunalaust sagt upp? Í fyrstu er hefur hann titilinn forstöðumaður og í skipuriti undir framkvædastjóra lögfræðisviðs, síðar fellur af einhverjum ástæðum forstöðumanns titillin niður.  Gunnar Viðar framkvæmdastjóri lögfræðisviðs sagði í mbl. 7. nóv. sl.; “Hann sagði aðspurður að Tryggvi Jónsson kæmi hvergi nálgat málum sem tengjast Baudi, 365, Jóni Ásgeiri Jóhennesssyni eða félögum sem tengjast honum.” “Deildin sem hann starfaði í sinnti ekki stærri málum og málefni Baugs teldust ótvírætt til stærri mála” Þeir sem starfa í bankanum vita að deildin Sértæk útlán er með mörg stór mál á sinni könnu.  

Af hverju eru þessir menn að ljúga til um þetta?

  www.baugsmalid.is  

Jon Gerald Sullenberger


Bloggfærslur 14. janúar 2009

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband