Fréttaauki Eyjunnar: Byr, Baugur, Karen Millen og viðskiptalífið sem var

Hér er mjög góður pistill frá henni Sigrúnu Davíðsdótir fréttakonu sem ég mæli með að allir lesi.

Alltaf eru þetta sömu mennirnir sem eru að misnota þessa þjóð og gera enn.

''Sparisjóðurinn Byr virðist vera að taka við hlutverki almenningshlutafélagsins FL Group sem fyrirtækið þar sem allar hreyfingar og hræringar eru óskiljanlegar með berum augum – en væntanlega skiljanlegar ef betur væri hægt að fá upplýsingar um einstaka stofnfjáreigendur og tengsl þeirra. Margir skuggabaldrar viðskiptalífsins sem var hafa laðast að þessum aldna sparisjóði eftir að Baugsveldið náði þar undirtökunum fyrir þremur árum. Byr heldur áfram að sjá Íslendingum fyrir óvæntum uppákomum, samanber aðalfundinn um miðjan maí og eftirmálin að stjórnarkosningum þar.

Þetta skrifar Sigrún Davíðsdóttir sem í fréttaauka Eyjunnar í dag fjallar um sparisjóðinn Byr, Baug, Karen Millen og viðskiptalífið sem var.

Eitt af því sem heyrðist stundum á árum áður var að líkt og Íslendingar færu erlendis að fjárfesta myndu útlendingar fjárfesta í íslenskum félögum. Það varð aldrei í miklum mæli – flestir fjárfestar fórnuðu höndum þegar þeir sáu hvað driffjaðrirnar í íslensku viðskiptalífi voru tengdar og hvað fátt var sem sýndist. Kevin Stanford og þáverandi kona hans Karen Millen voru undantekningarnar. Þau fjárfestu reyndar ekki upp á eigin spýtur heldur í nánu samfloti við Jón Ásgeir Jóhannesson, Sigurð Bollason og Magnús Ármann.

Kevin Stanford er ekki þekkt nafnt utan breska verslunar- og fjármálaheimsins en konan hans fyrrverandi, Karen Millen, er víðfræg enda er búðarkeðjan sem þau hjónin stofnuðu skýrð eftir henni. Snemma á 9. áratugnum byrjuðu þau hjón að sauma skyrtur og selja vinum og vandamönnum. Framleiðslan vatt upp á sig og úr varð keðja sem seldi vel. Baugur hafði áhuga á að byggja upp safn tískubúða og ‘Karen Millen’ féll inn í þá áætlun. Baugur keypti keðjuna haustið 2004 fyrir 70 milljónir punda og eignaðist þá 100 búðir, þar af rúmlega 40 Whistles-búðir sem þau Stanford og Millen höfðu áður keypt.

Þar með tengdust þau tvö Baugi og hröðum og örum Baugs-hræringum í breska fatabúðaheiminum. Standford og Millen eignuðust fjórðung í Oasis sem Baugur átti ásamt stjórnendum keðjunnar og Millen-keðjan fór inn í. Í fréttum á þeim tíma var sagt að þar með ætti Baugur 51 prósent í Oasis sem var keypt í nóvember 2003 fyrir 150 milljónir punda. Kaupþing kom kaupsamningnum saman og fjárfesti í Millen í leiðinni, að hætti fjárfestingabanka og þá var bankinn orðinn hagsmunaaðili í fatabúðageiranum. Oasis stefndi á að fara á markað með félagið – en það varð þó ekki fyrr en búið var að koma saman fleiri tískufyrirtækjum í Mosaic Fashion og það var þá gert á Íslandi, ekki í London. Leifarnar eru nú í þrotabúi Baugs. Í janúar kom fram að Kaupþing átti 20 prósenta hlut í Mosaic sem skuldaði bankanum 400 milljónir punda.

En Stanford hafði greinilega smekk fyrir Íslandi og íslenskum fjárfestum. Honum skaut upp í FL Group strax sumarið 2005 í örlagafléttunni þegar Saxbygg seldi rúmlega fjórðungshlut sinn í félaginu til Landsbankans sem seldi hann áfram. Lítið vissum við þá hvað í vændum væri en sumir voru uggandi því eins og kunnugt er gengu þau Árni Oddur Þórðarson, Hreggiviður Jónsson og Inga Jóna Þórðardóttir úr stjórn, því miður án þess að upplýsa nákvæmlega hvað þeim hugnaðist ekki við nýju eigendurna. (Saxbygg, í eigu Saxhóls sem Nóatúnsfjölskyldan á og Bygg, byggingarfélags Gylfa og Gunnars, óskaði nýlega eftir gjaldþrotaskiptum.) Upp úr þessum hræringum varð Hannes Smárason stjórnarmaður en aðrir í stjórn voru meðal annars Jón Ásgeir Jóhannesson, Þorsteinn M. Jónsson, Magnús Ármann og Sigurður Bollason.

Kevin Stanford varð varamaður, átti í félögunum Icon ehf og Materia Invest ehf ásamt Magnúsi og Sigurði en félögin komu við sögu í þessari sögulegu yfirtöku. Yfirtöku sem síðar var kærð og þar kom við sögu Lúx-félag, stofnað af Tortólufélögum eins og þessir umsvifamenn dýrka helst. Kæran breytti engu og Fjármálaeftirlitið áleit að allt hefði verið með eðlilegum hætti. Þegar kom fram á vorið 2006 skildu leiðir. Sigurður seldi sinn hlut í Icon ehf, sem átti tæp átta prósent í FL Group og Runna ehf, sem átti tæp þrettán prósent í Dagsbrún. Þessa hluti hans keypti Materia Invest ehf, í eigu Magnúsar, Stanford og Þorsteins. Stanford veit því allt um dálæti íslenskra umsvifamanna á snöggum ákvörðunum og um kaup- og sölugleði þeirra.

Stanford lét ekki staðar numið við FL Group heldur keypti líka hlut í Kaupþingi. Samskiptin við Kaupþing hafa reynst honum örlagaríkt. Í Englandi eru stjórnarmenn skyldugir að tilkynna ef þeir leggja hlutabréf sín í viðkomandi fyrirtæki að veði. Í vetur kom í ljós að á þessu hafði verið misbrestur. Fjármálaeftirlitið breska, FSA, gerði þá skurk í að minna menn á þessa skyldu. FSA birtir þessar upplýsingar og þá vakti athygli hvað margir höfðu fengið persónuleg lán í enska Kaupþingi út á hlutabréf. Þetta er ekki óþekkt hér en enginn banki var jafn glaðbeittur í slíkum lánum og Kaupþing. Þetta er líklega dæmi um hvað nýr banki á svæðinu gerir til að lokka til sín viðskiptamenn.

Einn þeirra var Stanford sem nú slæst við skilanefnd Kaupþings um lán upp á 250 milljónir punda. Sem veð hafði hann meðal annars lagt bréf í tískukeðjunni ‘All Saints’ sem Stanford stofnaði og Baugur átti 35 prósent í. Sú keðja er ein helsta afrekasaga í breska verslunargeiranum undanfarin ár. Hann var ósáttur að missa bréfin en hefur nú lotið í lægra haldi. Í Kaupþingslánum, líka frá Kaupþingi í Lúxemborg, til Stanford koma fleiri hlutir hans í öðrum fyrirtækjum við sögu. Það fer því að sneiðast um hans eignir. Stanford er einnig flæktur í málaferli á Íslandi þar sem VBS Fjárfestingabanki hefur höfðað mál gegn honum og fjárfestingarsjóðnum Kcaj, í eigu Jóns Schevings Thorsteinssonar sem áður vann hjá Baugi. VBS hafði lánað Ghost, fatafyrirtæki sem Stanford og Kcaj eiga saman, 5 milljónir punda, nú einn milljarð króna.

Þá er komið að Byr. Á lista yfir stofnfjáreigendur 30. júlí 2007 eru þau Stanford og Millen skráð hvor með sín 1,7 prósent. Eins og kunnugt er hefur komið í ljós að fyrri stjórn Byrs hélt velli vegna stuðnings Millen. Hún er hins vegar ekki lengur á lista yfir stofnfjáreigendur en hefur haldið því fram að Kaupþing Lúxemborg fari með hennar hlut. Bankinn er skráður fyrir 4,6 prósenta hlut svo annaðhvort hefur hún aukið hlut sinn eða að fleiri eru um þennan hlut. Nú virðist stefna í deilur um hvort þetta fyrirkomulag sé lögum samkvæmt.

Í stefnuræðu sinni sagði Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra: “Við megum ekki láta hagsmuni fárra víkja fyrir hagsmunum margra.” Ef þetta var mismæli er Byr góður staður til að byrja á. Arðgreiðslurnar í fyrra voru undarlegar, svo ekki sé meira sagt og spurning hversu lengi sparisjóðurinn verður vettvangur sérhagsmuna viðskiptalífsins sem var.,,

 

Er of mikils til ætlast að fjölmiðlar á Íslandi leiti svara af KRAFTI ? 

 

Græðgi þessara manna hefur eyðilagt orðstír heillar þjóðar.

Nýtt Ísland og heilbrigð skynsemi óskast.


Ársfundur Lífeyrissjóðs Verslunarmanna.

Kæru sjóðsfélagar,

Ársfundur Lífeyrissjóðs Verslunarmanna verður haldin á Grand Hótel kl.18:15 í kvöld 25 maí.

Þetta er líklega einn mikilvægasti fundur lífeyrissjóðsins til þessa og hvet ég alla sjóðsfélaga að mæta enda gríðarlegir hagsmunir í húfi.Lagt verður fram nokkur mál á fundinum og bið um stuðning ykkar enda ársfundurinn æðsta vald sjóðsins þar sem félagsmenn geta krafist svara.  Helstu mál: 1. Að sett verði launaþak á æðstu stjórnendur sjóðsins.2. Að bækur sjóðsins verði opnaðar og skuldabréfaeign sjóðsins verði sundurliðuð og gerð opinber. 3. Að laggður verði fram eignalista yfir öll hlutabréf, skuldabréf og aðrar eignir LIVE þann 1. janúar 2008, 3. október 2008 og 1. janúar 2009 (á við bæði innlendar sem og erlendar fjárfestingar). Jafnframt yfirlit yfir þóknanir við eignatilfærslur.4. Að fundurinn samþykki ekki ársreikning fyrr en upplýsingar um í 2. lið liggur fyrir.5. Að óháðir aðilar (erlendir) sem fulltrúar sjóðsfélaga utan stjórnar tilnefna til að endurskoða bækur sjóðsins.

Sýnum Samstöðu og mætum öll.

 

Með vísun í skrif mín í gær um BYR svikamylluna.

Nú hefur Karen Millen, tískubúðadrottning í Bretlandi skyndilega stigið fram og lýst því opinberlega yfir að hún eigi hlut í BYR Sparisjóð og veitt föður Ágústi Ármann, föður baugsleppsins Magga Ármanns, umboð í gegnum KB Banka Lúx til að fara með eignarhlutinn á aðalfundi BYR.
 
Þetta umboð Karen Millen til Ágústar Ármanns, tryggði gömlu valdhöfum BYR áframhaldandi völd í þessum sparisjóði sem er búið að ryksuga gersamlega að fjármunum til Baugsmanna.
 
Send hefur verið tilkynning til allra fjölmiðla þar sem harmað er að reynt sé að gera þetta tortryggilegt....
 
En hver er Karen Millen ?  Og síðan hvenær er hún stofnfjáreigandi í BYR ?  Af hverju er tískubúðadrottning í Bretlandi að kaupa hlut í litlum sparisjóð á Íslandi ?  Hver skyldi hafa fjármagnað kaup hennar á BYR stofnbréfum ?
 
Getur það verið að það sé sami aðilinn og fjármagnaði kaup Pálma Haraldssonar, Magga Ármanns og Þorsteins Jónssonar á Byr bréfum ?
 
Hver er eiginlega þessi Karen Millen ?
 
Ég hef hitt þetta ágæta fólk en Karen Millen var eiginkona Kevin Stanford, sem er einn helsti viðskiptafélagi Baugsmanna í Bretlandi og svo skemmtilega vill til að tískuvöruveldi hennar - Karen Millen - var í eigu Mosaic fashion sem keypti veldið af henni 2004 og gerði hana að marg-milljónamæringi.
 
Og hver skyldi hafa átt Mosaic fashion sem keypti Karen Millen tískuvörubúðirnar og gerði Karen Millen að milljónamæringi ?
 
 
Jú, það voru BaugsmennBaugur Groupá Mosaic fashion og liggur það núna í þrotabúi Baugs.
 
Og hver skyldi nú vera sérleyfishafi Karen Millen á Íslandi ?
 
Jú - það eru Hagar, sem er í eigu Gaums ehf. - eignarhaldsfélags Baugsmanna.


http://hagar.is/Forsida/Fyrirtaekin-okkar/Karen-Millen
 
 
Og af hverju leggja Baugsmenn ofuráherslu á að viðhalda gömlu valdhöfum Byr við stjórnarvölinn í Byr ?

Jú - Ítrekað hefur sú krafa komið fram að upplýst verði um hverjir hafi verið stærstu skuldarar Byrs, en talsmenn stjórnar BYR hafa borið við bankaleynd, nú síðast á aðalfundi Byr.
 
Það eina sem hefur komið fram er að um 80% af lánveitingum Byr tengist einungis um 10 aðilum !!!
 
Hvaða 10 aðilar skyldu þetta vera ?
 Getur verið að þær 1.5 milljarður ( 1.500 milljónir ) sem notaður var til borga kröfu Glitnismanna á fjölmiðlahluta 365 hf hafi komið frá Byr ? og þar með gat Jón Ásgeir Jóhannesson stofnað Rauðsól ehf og stjórnar hér enn stærsta hluta fjölmiðla á Íslandi.
 
Kæru fjölmiðlar - eru engin takmörk fyrir því hversu langt þessir menn geta gengið án þess að þið "hjólið" í þá af krafti ???

BYR tapaði um 30 milljörðum króna á sl.ári og það má EKKI upplýsa hverjir eru stærstu skuldarar BYR.
 
Eigendur BYR - ég endurtek - EIGENDUR BYR - þ.e. stofnfjárfestar, fá EKKI uppgefið hverjir hafa ryksugað BYR af fjármunum og skulda stærstu upphæðirnar.
 Nú er BYR kominn í þrot og vill fá um 11 ( 11 þúsund milljónir) milljarða ríkisaðstoð !!!  Þetta eru ykkar skattpeningar sem á að nota í að bjarga Byr !!!
 
Af hverju skyldi það nú vera ?

Er of mikils til ætlast að fjölmiðlar leiti svara af KRAFTI ? 

Græðgi þessara manna hefur eyðilagt orðstír heillar þjóðar.

Nýtt Ísland og heilbrigð skynsemi óskast.


BYR SVIKAMYLLAN - UMBOÐ KB BANKA LÚXEMBORG TIL PABBA MAGGA ÁRMANNS BAUGSLEPPS

Magnús Ármann er einn af Baugsleppunum sem sést best á því að hann skuldar í dag yfir 20 ÞÚSUND milljónirí félögum eins og Materia invest ehf., Maggi ehf. og Immon ehf.
 
Magnús Ármann sat í í skjóli Jóns Ásgeirs í stjórn FL Group og 365 miðla þar sem hann keypti einungis bréf í þeim fyrirtækjum sem Jón Ásgeir skipaði honum að gera með lánum frá Baugsbankanum Glitni.
 
Maggi Ármanns losaði líka einhverja "heppna" aðila við um 9 MiLLJARÐAaf hlutabréfum í Landsbankanum þar sem hann keypti bréfin af "Hr.X" 4 dögum fyrir hrun bankakerfisins í gegnum eignarhaldsfélag sitt Immon ehf.
 
Immon ehf. var einnig einn stærsti hlutahafinn í BYR og gegndi lykilhlutverki að gera BYR kleyft að borga út í ARÐ sumarið 2008 um 13,5 MILLJARÐA króna sem fóru að stærstum hluta til Baugsmanna, Pálma Haralds, Hannesar Smárasonar, Steina í Kók og svo Magga ármanns en eins og frægt er , er BYR kominn í þrot núna og vill fá um 11 milljarða ríkisaðstoð !!!
 
Þegar Landsbankinn féll voru bréf Immons ehf. í Landsbankanum einskis virði.
 
Immon er því algerlega gjaldþrotalíkt og öll félögin sem tengjast Baugsleppanum Magga ármanns.
 
Það er því ótrúlegt að faðir Magga Ármanns Baugslepps - Ágúst Ármann- skuli hafa gegnt lykilhlutverki í því að tryggja gömlu valdhöfum BYRS áframhaldandi völd með umboði fyrir um 400 milljón hlutum frá KB Banka Lúxemborg sbr.fréttir !!!
 
Hver velur Pabba Magga Ármanns, Baugslepps til að fara með yfirráð yfir 400 milljón hlutum ?

Er það skilanefnd ríkisbankans KB banka ???
 
Af hverju er ekki upplýst hvaða einstaklingar skulda hvað mest í BYR ? 
 
Getur verið að ástæðan fyrir því að KB Banki Lúxvilji tryggja áframhaldandi yfirráð gömlu valdaklíkunnar yfir BYR sé sú að nýjir stjórnendur megi ekki komast í bókhaldið og sjá hvernig Baugsmenn hafa ryksugað BYR eins og þeir hafa ryksugað Teymi (Gjaldþrota) , FL Group (Gjaldþrota), 365 (Gjaldþrota) , Glitnir(gjaldþrota) osvfrv. ?
 
Af hverju er ríkisbankinn KB Banki Lúx að tryggja Baugsleppunum áframhaldandi yfirráð í BYR sparisjóð með umboði til Pabba Magga ármanns sem skuldar á þriðja tug MILLJARÐA í bankakerfinu sem hann þarf EKKI að greiða ?

Ekkert frekar en aðrir Baugslepparnir ???
 
ERU ENGIN TAKMÖRK FYRIR ÞVÍ HVAÐ ÞESSIR MENN KOMAST UPP MEÐ ???

Allt í boði Baugs Group. (Hagar og Bónus í dag)

 

Græðgi þessara manna hefur eyðilagt orðstír heillar þjóðar.

Nýtt Ísland og heilbrigð skynsemi óskast.


Besta leiðin til að ræna banka er að eiga hann það var máli. Magnús Ármann með yfir 400 milljón hluti í Byr

Sveinn Margeirsson, nýkjörinn stjórnarmaður í Byr, setur spurningarmerki við umboð sem Kaupþing í Lúxemborg veitti fyrir aðalfundinn fyrr í vikunni. Er Kaupþing ekki gjaldþrota og komið í hendur hins opinbera?

„Mér telst til að það hafi verið Ágúst Ármann, faðir Magnúsar Ármann," segir Sveinn.

Magnús Ármann sem var eigandi Imons sem var stærsti eigandi sjóðsins áður en Landsbankinn tók hlutinn yfir.

Fréttastofa óskaði eftir upplýsingum frá Kaupþingi í Lúxemborg í dag en var neitað. Hrokinn heldur áfram er ekki komið nóg?

Þessir menn eru búnir að eyðileggja BYR með öllu.

Hér byrjar skíturinn að fljóta upp og nú vita allir hver endalokin verða með Byr. 

Fimmmenningarnir sem seldu stofnfjárhluti sína í Sparisjóði Hafnarfjarðar og Karl Georg Sigurbjörnsson lögmaður og einn besti vinur Magnúsar Ármanns hafði milligöngu um að kaupa af þeim segjast aldrei hafa heyrt talað um A-Holding, dótturfélag Baugs, sem eignaðist hlutina og seldi síðar fyrir mun hærra verð.

 

Þeir Sigurður G. Guðjónsson lögmaður, Pálmi Haraldsson, athafnamaður og Stefán Hilmarsson, fjármálastjóri Baugs hafa verið kallaðir til vitnis síðar í dag.

 

Byr varð til í desember 2006 þegar Sparisjóður Vélstjóra og Sparisjóður Hafnarfjarðar sameinuðust.

 

Allt í boði Baugs Group.

 

Græðgi þessara manna hefur eyðilagt orðstír heillar þjóðar.

Heilbrigð skynsemi óskast.


The best way to rob an insurance company is to own one.

Veðsettu bótasjóðinn - vantar 10 milljarða til að tryggja Sjóvá

Heimildir Morgunblaðsins herma að slæma stöðu Sjóvár megi rekja til þess að fyrrverandi eigandi félagsins, Milestone veðsettu bótasjóðinn.

Minnst 10 milljarða króna vantar í eignasafn Sjóvár svo að eiginfjárhlutfall félagsins teljist jákvætt, samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag.

FL Group eignast 84% hlutafjár í TM

18.9.2007

Miklar breytingar verða væntanlega á stjórn Tryggingamiðstöðvarinnar hf., TM, á hluthafafundi sem haldinn verður síðdegis í dag. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins mun Hreinn Loftsson, stjórnarformaður Baugs, einn eigenda Ovalla Trading, stærsta hluthafa TM, verða næsti stjórnarformaður Tryggingamiðstöðvarinnar í stað Tryggva Jónssonar, aðstoðarforstjóra Baugs,

Aðrir sem munu gefa kost á sér í stjórn TM á hluthafafundinum í dag eru: Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, sem kemur inn sem fulltrúi Fjárfestingarfélagsins Straums, og Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugsog einn eigenda Ovalla Trading.

Ovalla Trading er í eigu Hreins Loftssonar og Fjárfestingarfélagsins Gaums, sem er í eigu Jóhannesar Jónssonar og barna hans, Kristínar og Jóns Ásgeirs.Ovalla er með rúmlega 18% hlut í TM sem félagið keypti af Kaupþingi nýverið á 2,2 milljarða króna.

 Nú verður gaman að sjá hvernig hinir bótasjóðirnir standa.

 Vís = Exista
TM = Fl group stoðir
Sjóvá = milstone
vörður = baugur breyttist svo í landsbankann

 

Nýtt Ísland og heilbrigð skynsemi óskast.


Kafbátastarfsemin heldur áfram hér heima. Skilanefnd Spron selur eignir með tölvupósti til útvaldra !!!!!!!!!

Skilanefnd Spron hefur sent út tölvupóst til örfárra aðila þar sem hún óskar eftir tilboðum í hugbúnaðarfyrirtæki í sinni eigu. Ekkert formlegt söluferli fór fram. Er ekki komið nóg af þeirri kafbátastarfsemi sem hér hefur verið við lýði undanfarin ár.

 Hvenær ætlum við að taka okkur saman í andlitinu og og hafa allt upp á borðinu. 

 Samfylkingin og VG  hefði getað haft flokksráðs- og flokksstjórnarfundi sína fyrir opnum tjöldum, ég hélt að almenningur ætti að taka þátt í Nýja Íslandi það var allavega það sem þjóðin bað um ekki rétt?

 Í staðinn var farin sú leið að flokksfólk, innvígt og innmúrað, fékk eitt aðgang og algjör leynd hvílir yfir umræðunum.

 Þau hefðu getað gert það með því að hafa flokksráðs- og flokksstjórnarfundi sína fyrir opnum tjöldum og boðið fjölmiðlum inn og sent þetta út í beinni til þjóðarinnar hún á það skilið.

Stjórnvöld og opinberar stofnanir eins og ríkisbankarnir eigi að upplýsa þjóðina um gang mála eins búið var að lofa.  

 

Nýtt Ísland og heilbrigð skynsemi óskast.

 


" RÁNIÐ HELDUR ÁFRAM Í BOÐI BAUGS GROUP" Tapaði næstum milljarði eða 829 milljónum.

Teymi tók yfir skuldir stjórnenda félagsins Forstjóri og fjármálastjóri gátu ekki tapað krónu á lántöku fyrir hlutabréfum Árna Péturs Jónssonar, forstjóra Teymis, sem er hægri hönd Jón Ásgeir Jóhannessonar en Árni Pétur Jónsson, var framkvæmdastjóri rekstrarsviðs Baugs
  • Samkvæmt efnahagsreikningi Teymis nema eignir félagsins 23,7 milljörðum króna. Skuldir þess nema samtals 46,9 milljörðum.

TEYMI tók yfir skuldir tveggja félaga, TT1ehf. og TT2 ehf., sem eru í eigu forstjóra og fjármálastjóra Teymis, þegar félagið var afskráð í október síðastliðnum. Skuldin, sem er við Íslandsbanka, stóð í 829 milljónum króna þann 28. febrúar.

Félögin hétu fyrst Árni Pétur Jónsson ehf. og Ólafur Þór Jóhannesson ehf. Nafni þeirra var breytt í TT1ehf. og TT2ehf. í lok október síðastliðins í kjölfar þess að Teymi tók þau yfir.

 

Nú eiga skattgreiðendur að borga.

 

Allt í boði Baugs Group.

 

Græðgi þessara manna hefur eyðilagt orðstír heillar þjóðar.

Heilbrigð skynsemi óskast.

 

 


Áróður Fréttablaðsins í dag út af ESB.

Það er með ólíkindum að sjá forsíðu Fréttablaðsins í dag. Þessi áróður Baugblaðsins um að Ísland gangi í ESB ætlar ekki að linna, getur einhver sagt þeim að það voru eingöngu 29.8% þjóðarinnar sem kaus Samfylkinguna.

70.2% kaus aðra flokka.

 Að setja það sem fyrirsögn að FIMM ÞINGMENN VG ÆTLA AÐ VERA Á MÓTI aðildarumsókn í ESB er ekkert annað er áróður og hallærislegt að hálfu ritstjóra Baugsblaðsins.

 Yfirgangur þessara manna verður að linna og það STRAX.

 

Heilbrigð skynsemi óskast.


Er þetta það Nýja Ísland sem almenningur hefur verið að bíða eftir?

Samfylkingin og VG  hefði getað haft flokksráðs- og flokksstjórnarfundi sína fyrir opnum tjöldum, ég hélt að almenningur ætti að taka þátt í Nýja Íslandi það var allavega það sem þjóðin bað um ekki rétt?

 Í staðinn var farin sú leið að flokksfólk, innvígt og innmúrað, fékk eitt aðgang og algjör leynd hvílir yfir umræðunum.

 Þau hefðu getað gert það með því að hafa flokksráðs- og flokksstjórnarfundi sína fyrir opnum tjöldum og boðið fjölmiðlum inn og sent þetta út í beinni til þjóðarinnar hún á það skilið.

Stjórnvöld eigi að upplýsa þjóðina um gang mála eins og lofað var í kosningabaráttunni.

Svona er Nýja Ísland í dag.

 

Heilbrigð skynsemi óskast.


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband