10.5.2009 | 15:00
The Best Way to Rob a Bank is from the Inside. (Besta leiðin til að ræna banka er að eiga hann)
Stærsta bankarán í sögu Íslands ?
Bjarni Ármannsson, fyrrverandi forstjóri Glitnis, bar fyrir dómi í gær að hann hefði rætt fyrirhuguð starfslok sín og kaup á hlutum sínum í bankanum við Jón Ásgeir Jóhannesson áður en frá málunum var gengið.
Fréttablaðið segir að stjórn Glitnis hafi samþykkt yfirverðið 30. apríl 2007. Rifjað er upp að FL Group, þar sem Jón Ásgeir hafði mikil áhrif, varð stór hluthafi í Glitni fyrr um árið.
Samkvæmt frásögn blaðsins sagði Bjarni við aðalmeðferðina að hann hefði sjálfur óskað þess að hætta í bankanum og hefði viljað rjúfa við hann öll tengsl. Hann hefði sjálfur viljað selja bréfin á genginu 29. Hann játti því að hafa rætt þetta gengi við Jón Ásgeir.
Þetta sagði íslenskur bankaræningi.
Græðgi þessara manna hefur eyðilagt orðstír heillar þjóðar.
Heilbrigð skynsemi óskast.
10.5.2009 | 14:44
" RÁNIÐ HELDUR ÁFRAM" Baugsmenn skila BT eftir Jólasöluna og þá spyr maður sig hvað er eftir í búinu ?
Hætt við kaup Haga á BT verslana ehf.
Fallið hefur verið frá samningi þrotabús BT verslana ehf. og Haga Invest ehf. um kaup Haga á verslunum og viðskiptavild tölvuverslana BT.
Nú er búið að tæma allt út úr þessu þrotabúi og þá á að skila því!!!!!!!!!!!!!
Vísir, 20. nóv. 2008 21:54
Hagar kaupa verslanir BT
Hagar keyptu í dag allar eignir BT verslananna. Þetta hefur fréttastofa Ríkisútvarpsins eftir skiptastjóra þrotabús verslananna. ( FYRIR HVAÐA PENINGA?)
Á vef Viðskiptablaðsins ber fráfarandi eigandi BT sig heldur illa og sakar forsvarsmenn Haga um að spila illa út þrotabúi fyrirtækisins, sem þeir keyptu fyrir jól.
,,Það er sorglegt að sjá hvernig Hagar hafi spilað úr BT. Þeir eru búnir að loka öllum verslunum BT nema tveimur og það kæmi mér ekki stórkostlega á óvart þó þær loki líka, sagði Sverrir Berg Steinarsson, eigandi Árdegis sem átti BT verslanirnar áður en þær komust í hendur Haga.
,,Það læðist að manni sá grunur að menn séu að hafa áhrif á samkeppnina með kaupunum. Allar verslanir BT voru með jákvæða afkomu en þær tvær verslanir sem eftir standa voru sístu búðirnar, bætti Sverrir Berg við.
Vegna athugasemda sem komið hafa fram af hálfu Samkeppniseftirlitsins hefur verið fallið frá samningi um kaup Haga á verslunum og viðskiptavild BT-verslananna í gegnum þrotabú BT.
Samningurinn var gerður þann 20. nóvember síðastliðinn. Skiptastjóri þrotabúsins Helgi Jóhannesson segir
Græðgi þessara manna hefur eyðilagt orðstír heillar þjóðar.
Heilbrigð skynsemi óskast